Ísfélag Vestmannaeyja greiddi starfsfólki í landi tvöfalda desemberuppbót á dögunum og vildi með því sýna þakklæti fyrir vel unnin störf á árinu. Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarformaður Ísfélagsins, sagði síldveiðarnar í haust hafa breytt miklu fyrir félagið. Þær hafi verið óvænt búbót fyrir félagið og því hafi stjórn félagsins ákveðið að deila þeim ávinningi með starfsfólkinu í jólamánuðinum. Með stöðugleikasáttmála hafi umsömdum launahækkunum verið slegið á frest og starfsfólk sýnt mikla fórnfýsi og biðlund.