B-liðið í 16-liða úrslit
ÍBV-B tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum Coca-cola bikars karla í kvöld eftir að hafa sigrað Hauka 2 með fimm mörkum, 22-27.
Jafnræði var með liðunum á upphafsmínútunum og var jafnt á öllum tölum. Eyjamenn sigu svo hægt og rólega fram úr og voru komnir í þægilega stöðu, 8-11 þegar fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. �?á tók við slæmur kafli hjá ÍBV og Haukar komust inn í leikinn og náðu að jafna, 11-11, áður en flautað var til hálfleiks.
Í síðari hálfleik var það sama uppi á teningnum, jafnræði var með liðunum á upphafsmínútunum. Leikmenn ÍBV ætluðu sér sannarlega í næstu umferð og sigu fram úr. �?egar tíu mínútur voru eftir að leiknum voru leikmenn ÍBV þremur mörkum yfir, þá fá þrír leikmenn liðsins tveggja mínútuna brottvísun. Leikmenn Hauka náðu ekki að nýta sér liðsmuninn nógu vel og lið ÍBV sigraði leikinn örugglega, 22-27.
Á morgun verður dregið í 16-liða úrslitum keppninnar í beinni útsendingu á R�?V í leik Vals og Akureyrar, en ÍBV á þar tvö lið í pottinum.
Mörk ÍBV skoruðu þeir; Leifur Jóhannesson 9, �?órarinn Ingi Valdimarsson 8, Sigurður Bragason 5, Daði �?lafsson 1, Björgvin �?ór Rúnarsson 1, Hilmar Ágúst Björnsson 1, Sæþór �?rn Garðarsson 1 og �?ttar Steingrímsson 1.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.