Valsmenn sigruðu B-lið ÍBV með 13 mörkum í Eyjum í dag en lokatölur voru 20-33. Sigurinn var svo til aldrei í hættu þar sem jafnræðið í leiknum hvarf eftir 30 mínútna leik.
B-liðið byrjaði leikinn ótrúlega vel en þeir voru 3-0 yfir eftir fjögurra mínútna leik þegar gestirnir gerðu sitt fyrsta mark. �?á höfðu þeir Sigurður Bragason, Hilmar Ágúst Björnsson og Leifur Jóhannesson skorað falleg mörk.
Liðið var ennþá yfir eftir níu mínútur en þá kom Leifur liðinu í 5-3. Eftir tíu mínútna leik fögnuðu leikmenn B-liðsins á bekknum, í sömu andrá og Davíð �?ór �?skarsson kom liðinu í 6-4 en það hlýtur að vera að markmiðið hafi verið að leiða leikinn eftir tíu mínútur.
�?rír af lykilmönnum Vals sátu sem fastast á bekknum á fyrstu mínútunum, en þeir voru Hlynur Morthens, Orri Freyr Gíslason og Guðmundur Hólmar Helgason. Valsmenn jöfnuðu þó í fyrsta skiptið eftir um tólf mínútna leik.
Valsmenn komust yfir í fyrsta skiptið eftir að Leifur klikkaði á vítakasti rétt fyrir tuttugustu mínútu. Friðrik �?ór Sigmarsson varði vítakast frá Sveini Aroni Sveinssyni, leikmanni Vals undir lok fyrri hálfleiks og ákveðinn stemning myndaðist í húsinu. �?skar Bjarni �?skarsson sagði dómurum leiksins að dómgæslan væri ekki boðleg eftir vafasaman dóm sem datt Eyjamegin.
�?egar tæpar tvær mínútur voru eftir jafnaði Arnar Richardsson metin í 13-13 og fékk Alexander �?rn Júlíusson, leikmaður Valsmanna, tveggja mínútna brottvísun. Valsmönnum líkaði ágætlega að vera einum færri en þeir voru 13-14 yfir í hálfleik.
Dómarar leiksins tóku sér heldur langt hálfleiks hlé en leikmenn liðanna ákváðu að byrja leikinn áður en þeir mættu, dómararnir tók ekkert alltof vel í það. Guðmundur Hólmar Helgason og Orri Freyr Gíslason komu strax inn á fyrstu mínútu seinni hálfleiks en þá var ljóst að gestirnir ætluðu að setja púður í leikinn. Guðmundur Hólmar skoraði fyrstu tvö mörkin í síðari hálfleik en það var ljóst að hann var ekkert að grínast.
Orri Freyr var heldur fúlli en Guðmundur og sagði dómurum leiksins að dæma eins og menn þegar hann var ekki sáttur með dómgæsluna. Staðan var orðin 13-20 eftir 38 mínútur og leiknum í raun lokið þannig séð.
Benóný Friðriksson fór á punktinn þegar nokkrar mínútur voru búnar af síðari hálfleiks en hann setti boltann í stöngina, markvörður Vals stóð á línunni í vítinu en Sigurður Bragason var alls ekki sáttur með það. �??Stattu líka á línunni á móti mér,�?? sagði Sigurður grimmum rómi. Valsmenn héldu áfram að valta yfir liðið en ÍBV skoraði ekki mark fyrr en eftir tíu mínútur í síðari hálfleik þegar Davíð minnkaði muninn í 14-22.
Eftir 46 mínútna leik fór rautt spjald á loft þar sem Alexander �?rn Júlíusson, sem er ekki í neinu uppáhaldi hjá Hvítu Riddurunum, stuðningsmannahóp ÍBV, fékk þriðju tveggja mínútna brottvísun sína. Eftir tuttugu mínútur í síðari hálfleik höfðu gestirnir skorað 14 gegn þremur.
Vignir Stefánsson, fyrrum leikmaður ÍBV, gaf sirkus-sendingu á Pálma Harðarson sem skoraði undir lok leiksins. Guðmundur Ásgeir Grétarsson, betur þekktur sem Gumma-pönk, kom inn á á síðustu mínútunni og gerði sér lítið fyrir og skoraði með bylmingsskoti uppi í hornið nær. Flott mark hjá Gumma og góður endir á leiknum sem lauk 20-33.
�?eir sem keyptu sig inn á leikinn fengu því nóg fyrir peninginn en þeir troðfylltu húsið og fengu auðvitað að sjá Gumma dansa Gangnam Style dansinn þegar leiknum lauk.
Mörk ÍBV skoruðu þeir; Leifur Jóhannesson 6, Sigurður Bragason 4, Davíð �?ór �?skarsson 3, Hilmar Ágúst Björnsson 2, Birkir Hlynsson 1, Pálmi Harðarson 1, Sæþór Garðarsson 1, Arnar Richardsson 1 og Guðmundur Ásgeir Grétarsson 1.