Baðlón og hótel á Skanshöfða
Skans Yfir Alta
Ljósmynd/ALTA

Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyja í byrjun vikunnar var lögð fram tillaga á vinnslustigi vegna breytinga á aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 vegna baðlóns og hótels við höfða austan við Skansinn. Einnig var lögð fram tillaga að nýju deiliskipulagi sem felur í sér skipulag fyrir Skansinn, og hótel og baðlón á Skanshöfða auk umhverfismatsskýrslu áætlana.

Skipulagslýsing fyrir verkefnið var auglýst haustið 2021. Alls bárust 8 umsagnir. Gerð tillögu á vinnuslustigi hefur falið í sér tæknilegar útfærslur auk þess sem hugmyndir hafa þróast og tekið breytingum við nánari gerð skipulagsáætlana og hefur gerð tillögunnar því tekið nokkurn tíma.

Ráðið samþykkti fyrir sitt leyti að kynna á vinnslustigi skipulagáætlanir fyrir Skans og Skanshöfða vegna þróunar hótels og baðlóns og var málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Nánar verður fjallað um málið á næstu dögum hér á Eyjafréttum/Eyjar.net.

Drog

Nýjustu fréttir

Gleðilegt sumar
Lundinn sestur upp
Áætlunarflug framlengt vegna stöðunnar í Landeyjahöfn
Álfsnesið þurfti frá að hverfa
Íris um samgöngumálin
Hoppað á vagninn
Samgöngur – Bréf til forsætis- og innviðaráðherra
Úrslitakeppnin hjá stelpunum að hefjast
viðburðir
Andres Stefan Mbl
15. apríl 2026
20:00
Borgarafundur í Höllinni
Höllin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.