Bærinn og GV semja
Img 1936
Sigursveinn Þórðarson og Íris Róbertsdóttir handsala hér samninginn. Ljósmynd/vestmannaeyjar.is

Í síðustu viku undirrituðu þau Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri og Sigursveinn Þórðarson, stjórnarformaður Gólfklúbbs Vestmannaeyja tveggja ára samstarfssamning milli klúbbsins og Vestmannaeyjabæjar. Frá þessu er greint á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar.

Þar segir enn fremur að megináhersla með samningnum sé skipulagt íþróttastarf fyrir börn og unglinga undir leiðsögn vel menntaðra og hæfra leiðbeinenda, en jafnframt á keppnis- og afreksíþróttafólk. Vestmannaeyjabær mun með samningi þessum styðja við fjárhagslegan rekstrar- og starfsgrundvöll félagsins með beinum fjárframlögum, sem og fjárfestingu í uppbyggingu golfskálans. Með því verður öll aðstaða Golfklúbbsins bætt til muna.

Nýjustu fréttir

Sveigjanleikinn skiptir mestu máli 
Bleikar kræsingar í morgunkaffinu hjá Vinnslustöðinni
Rúmlega 1,6 milljónir til góðra málefna eftir metkvöld í Höllinni
Afköstin meiri í fjarvinnu
Ein ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjarnar lönduðu 69 tonnum eftir stutta túra vegna brælu
Skráningarfrestur á atvinnulífssýningu Uppsprettu Suðurlands framlengdur
Sundlaugin lokuð vegna viðhalds – útisvæðið áfram opið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.