Bandarískur varnarmaður til Eyja
Avery Vander Ven

Bandaríska knattspyrnukonan Avery Vander Ven hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild ÍBV og kemur til með að leika með liðinu í Lengjudeild kvenna í sumar. Hún er 22 ára og hefur leikið í bandaríska háskólaboltanum síðustu ár, bæði hjá Colorado State Rams og einnig hjá Texas Longhorns.

Í tilkynningu á heimasíðu ÍBV segir að Avery hafi leikið í frábærri vörn hjá Colorado State sem setti nokkur met, meðal annars hélt liðið hreinu 10 sinnum á tímabilinu 2023 sem er met hjá skólanum. Hún lék hverja einustu mínútu í öllum 22 leikjum liðsins árið 2023 og einnig í öllum 21 leikjum liðsins árið 2024, þar sem liðið hélt hreinu 9 sinnum.

Ljóst er að hún er traustur varnarmaður og hafði Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari liðsins, þetta um Avery að segja: „Hún er hávaxin og er líkamlega sterkur varnarmaður sem býr yfir góðri tækni og góðum taktískum skilningi. Gott auga fyrir samleik og getur leyst fleiri stöður á vellinum.“

Nýjustu fréttir

Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.