Bílabúð Benna með bílasýningu um helgina
Bílabúð Benna heimsækir Vestmannaeyinga um helgina með glæsilegan bílaflota og slær upp sýningu við bíla- og vélaverkstæðið Nethamar, laugardaginn 30. apríl. Til sýnis verða Opel, Chevrolet og SsangYong bílar. Frá Opel ber hæst frumsýning á nýkjörnum Bíl ársins í Evrópu, Opel Astra, aðrar gerðir frá Opel eru flaggskipið Insignia, sportjeppinn Mokka og töffarinn Corsa. Frá Chevrolet verður flaggað hinum fallega Cruze og metsölubílnum Spark. �?á verða líka með í ferð hörku jepparnir Korando og Rexton frá SsangYong, sem vakið hafa athygli fyrir gæði og frábært verð.
Bílasýningin verður haldin við bíla- og vélaverkstæðið Nethama, laugardaginn 30. apríl, frá kl: 11:00 �?? 16:00 og sunnudaginn 1. maí, frá kl. 11:00 til 14:00.
Allir eru hjartanlega velkomnir á sýninguna. Heitt verður á könnunni og bakkelsi á borðum.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.