Blóðug bylting, MH17 og Chernobyl beint í æð
Manni bregður í brún þegar ein af inngöngudyrum okkar Íslendinga að Evrópu verður fyrir árás hryðjuverkamanna eins og gerðist í gærmorgun á flugvellinum í Brüssel. �?ar urðu tvær sjálfsmorðssprengingar og á þriðja tug lést og tugir eru alvarlega særðir. �?á voru fréttir á sama tíma um að sprengja hafi sprungið á lestarstöð skammt frá skrifstofum Evrópusambandsins. ´
�?að gengur á ýmsu í Evrópu, umrót mikið og eru hryðjuverkin einn anginn af því. Af öðrum meiði er það sem er að gerast í �?kraínu sem hefur verið vettvangur mikilla átaka undanfarin ár. Gestir í Einarsstofu á laugardaginn fengu innsýn í það sem þar er að gerast, annars vegar á mjög áhrifamikilli ljósmyndasýningu og ekki síður í upplýsandi fyrirlestri Stefáns Hauks Jóhannessonar, ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu.
Við upphaf átakanna í ársbyrjun 2014 var hann kallaður til sem yfirmaður alþjóðlegs eftirlitsteymis �?ryggis og Samvinnustofnunar Evrópu �?SE í Kænugarði. Á Sjálfstæðistorginu þar sem andófsfólk hafði komið sér fyrir kom til blóðugra átaka sem enduðu með miklum hörmungum. Stefán upplifði eftirköst átakanna ásamt því að vera kominn á vettvang sólarhring eftir að malasíska farþegavélin var skotin niður skammt frá rússnesku landamærunum 17. júlí 2014. Stefán fór líka til Chernobyl þar sem stærsta kjarnorkuslyss sögunnar varð árið 1986. Og myndavélin var með í för.
Sýning Stefáns stendur næsta mánuðinn og vel þess virði að kíkja við í Einarsstofu og líta á myndir Stefáns sem segja mikla sögu. Hann hefur næmt auga fyrir viðfangsefninu og tekst ætlunarverk sitt, að sýna andstæður stríðsins þar sem blóðið flýtur á meðan daglegt líf gengur næstum sinn vanagang.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.