Breytingar samþykktar á Landakirkju
Sóknarnefnd Ofanleitissóknar samþykkti samhljóða á fundi sínum sl. þriðjudag breytingar á Landakirkju. Núverandi turn kirkjunnar sem byggður var á 6. áratug síðustu aldar er orðin lúinn og steypa víða morkinn. Eftir að leitað hafði verið sérfræðiálits var það mat sóknarnefndar að ekki borgi sig að gera úrbætur á turninum. Sóknarnefnd ákvað á fundi sínum að láta fjarlægja turninn og byggja nýjan, jafn háan hinum gamla, og mun hann standa sunnan við kirkjuna. Kirkjan mun því fá það útlit sem hún hafði þegar hún var reist í kringum 1780, nema að brunaútgangur verður útbúinn að austanverðu og ný og lítil forkirkja að vestanverðu. �?essu munu fylgja margar góðar úrbætur en með því að aðskilja kirkjuskip við turn og þá um leið klukknaport verður næði kirkjugesta meira og eins mun skrúðhús presta og önnur aðstaða þeirra í Landakirkju batna til mikilla muna. Einnig verður salernisaðstaða fyrir fatlaða bætt í kirkjunni og leki í göngum niður í safnaðarheimili munu heyra sögunni til svo fátt eitt sé nefnt.

Fyrir áhugasama liggja teikningar af fyrirhuguðum breytingum á kaffistofunni í skrifstofuhluta safnaðarheimilisins.

Með von um bjarta framtíð og vor í hjarta og fyrir hönd Sóknarnefndar Ofanleitissóknar, Vestmannaeyjaprestakalli.
Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir
Formaður

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.