Búið er að bólusetja fyrsta skammtinn
Öflugur hópur og vel að verki staðið. Mynd Laxey.
„Síðasta vika var gríðarlega spennandi en að sama skapi einnig annasöm. Fyrsti seiðahópurinn var nefnilega bólusettur og gekk það vonum framar. Það var NORVACC sem sá um verkefnið fyrir okkur en það er fyrirtæki sem sérhæfir sig í bólusetningum á seiðum,“ segir á FB-síðu Laxeyjar í morgun.
„Stórt hrós til þeirra fyrir að sjá um þennan mikilvæga þátt. Jafnvel í stýrðu umhverfi landstöðva okkar bætir bólusetning  öryggi og tryggir heilsu og framleiðni eldislaxins á lífsleiðinni. Það er alltaf spenna í loftinu þegar verið er að gera hluti í fyrsta skiptið. Því er góður undirbúningur og góðir starfsmenn gulls ígildi. Stórt hrós fær starfsfólkið, bæði teymið sem sér um seiðin sem og tækniteymið. Vel gert.“

Nýjustu fréttir

Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjaperlur í Eldheimum – myndir
Látinna minnst í allraheilagramessu í Landakirkju
Herjólfur aftur til Landeyjahafnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.