Dagur einhverfu á laugardaginn
Í tilefni af alþjóðlegum degi einhverfu laugardaginn 2.april ætlar Einhugur félag aðstandenda einhverfra í Vestmannaeyjum að hafa opið hús í salnum Eldey í Goðahrauni frá kl. 16-18.
Yfirskrift dagsins verður: Hvað eru börnin okkar að gera og hver eru áhugamálin þeirra?
Meðal viðburða dagsins má nefna að afhent verður öllum skólastofnunum í Vestmannaeyjum gjafir frá Einhug. Nýtt logo félagins verður kynnt og veitt viðurkenning fyrir það. Stutt ávörp og létt fræðsla. Einhugur ætlar að bjóða upp á léttar veitingar og gott spjall með. Vonandi sjá sér flestir fært að mæta og kynnast félaginu.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.