Dagur Arnarsson og Hákon Daði Styrmisson voru á dögunum úti í Póllandi þar sem íslenska u-20 ára landsliðið tók þátt í undankeppni fyrir EM sem fer fram í Danmörku í júlí og ágúst seinna á árinu. Undanriðlarnir fóru fram í átta löndum þar sem eitt lið úr hverjum riðli hýsti liðin úr riðlinum.
Íslenska landsliðið var í riðli með gestgjöfum Pólverja, Búlgurum og Ítölum. Fyrsti leikur liðsins fór fram á föstudaginn en þar spilaði liðið við Pólverja. Veðbankar bjuggust við mjög spennandi leik en íslenska liðið spilaði alveg frábærlega. Liðið var fimm mörkum yfir í hálfleik og kláraði leikinn síðan með fimm marka mun 26:31. Dagur komst ekki á blað en Hákon Daði skoraði tvö mörk.
Næsti leikur var gegn Búlgurum og var það ljóst fyrir leik hvort liðið myndi sigra. Staðan var 22:9 í hálfleik fyrir Íslendingum sem héldu uppteknum hætti í seinni hálfleik og sigruðu með 24 marka mun 45:21. Hákon skoraði sjö mörk en Dagur skoraði þrjú.
Síðasti leikurinn var gegn Ítölum sem höfðu sigrað Búlgara á fyrsta degi mótsins. Staðan var aðeins jafnari í hálfleik heldur en gegn Búlgurum en Ísland leiddi með tíu mörkum. Lokatölur voru 45:20, Hákon Daði skoraði þrjú mörk en Dagur skoraði ekki mark.
Dagur skoraði því þrjú mörk um helgina og Hákon Daði tólf. Í öllum átta undanriðlunum var ekkert lið sem skoraði fleiri mörk en Ísland, liðið skoraði 121 mark en næsta lið gerði 106 og voru það Pólverjar. Í öðrum riðlum skoruðu Svíar mest eða 105 mörk.
Ísland var einnig með bestu markatöluna í öllum undanriðlunum eða +54 mörk. �?að er því ljóst hvaða lið fara áfram á Evrópumótið en þar verða fjögur lið af Norðurlöndunum en Svíar, Danir og Norðmenn fara einnig í lokakeppnina.