Djöflast á okkur og menn hissa að ekkert gerist
�??�?að er svo sem ekkert nýtt sem þú ert að spyrja um en ný ferja ristir bara 2.8 m. og getur snúið sér á punktinum þannig að hún gæti siglt inn í Landeyjaho�?fn í góðu veðri eins og aðstæður voru áður en byrjað var að dæla í þar síðustu viku. �?að er o�?rugglega mo�?rgum sem finnst sandurinn vera stærsta málið varðandi Landeyjaho�?fn en það er samtengt Herjólfi vegna djúpristu hans eins og áður hefur komið fram,�?? sagði Sigurður Áss Grétarsson, framkvæmdastjóri siglingasviðs Vegagerðarinnar þegar hann var spurður hvernig ætlunin væri að ná to�?kum á sandburði í Landeyjaho�?fn. Sigurður sagði að djúprista Herjólfs valdi því að dýpka þurfa mikið fyrir hann auk þess sem o�?lduhæð, straumar og fleira séu vandamál fyrir Herjólf. �??Dýpið innan hafnar verður alltaf unnt að tryggja en erfiðara verður að glíma við dýpið í hafnamynninu og rifinu yfir háveturinn. Með Herjólfi er það útilokað,�?? sagði Sigurður. Hann sagði að það væri skiljanlegt að menn væru ósáttir með gang mála en að ásaka Vegagerðina sé ósanngjarnt því ekki er farið eftir ráðum hennar um að fá nýja ferju. �??Á sama tíma og djo�?flast er á okkur eru menn hissa á að ekkert gerist. Afleiðingin er sú að ríkisstjórnin nýtir tækifærið til að draga ákvo�?rðun um smíði á nýrri ferju. �?að var ljóst í upphafi að Herjólfur er ekki hentugur til siglinga í Landeyjaho�?fn. Enda fólst ho�?nnun hafnarinnar í að fá nýja ferju. Hins vegar áttum við Íslendingar erfitt 2008 og því varð að fresta smíði nýrrar ferju en núna þegar við eigum peninga þá leggja sumir sig fram um að hindra að ný ferja verði smíðuð. Á sama tíma og þeir skilja ekkert í að ho�?fnin sé ekki opin. Hvað mo�?nnum gengur til er illskiljanlegt. Að reyna að bæta aðstæður fyrir utan ho�?fnina og draga úr sandburði er langhlaup og það verður ekki gert á kaffistofum eða með photo shopi.�?? Sigurður sagði að því miður sé staðan sú að á meðan ný ferja kemur ekki verði engar breytingar. �??Auðvitað er sandurinn vandamál, aldan, straumur, vindur og margt fleira en mestur árangur næst með nýrri ferju. �?að er skynsamlegast að fá nýja ferja og svo tíma til að bæta annað sem út af stendur,�?? sagði Sigurður Áss að endingu.

Nýjustu fréttir

Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Við þurfum að hætta þessum bútasaumi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.