Einu sinni var hugmynd að byggja minningarkapellu í Löngu
Á þessum degi (23.mars) árið 1995 birtist grein í Eyjafréttum um þá hugmynd að byggð yrði minningarkapella í Löngu. Nokkrir áhugamenn efndu til fundar í Safnaðarheimili Landakirkju þar sem þetta var rætt. Árni Johnsen hafði orð fyrir áhugahópnum. Hugmynd var að byggð yrði kapella 20-30 fermetrar að stærð sem tákn um landtöku kristni á Íslandi. Fjármagn yrði aflað með söfnunum og áhugastarfi, en ekki með því að ganga í opinbera sjóði. Ýmsir fundarmenn tjáðu sig um málið og fannst það af hinu góða. Kristján Egilsson taldi ekki heppilegt að slíkt hús yrði byggt undir Löngu vegna hrunhættu úr Heimakletti. Valgeir Jónasson taldi hús sem höggvið væri inn í Heimaklett gæti orðið skemmtilegt.
Til að undirbúa þetta mál var kosin fimm manna framkvæmdarnefnd.
Hægt er að lesa alla fréttina, á myndinni hér fyrir ofan.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.