Elliði stendur með ákvörðun Páleyjar
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist standa með ákvörðun Páleyjar Borgþórsdóttur lögreglustjóra um að greina ekki opinberlega frá tilkynntum kynferðisbrotum á þjóðhátíð í ár. Ákvörðunin sé tekin með hagsmuni þolenda að leiðarljósi. �??�?essum brotum, sem og öllum öðrum, þarf að sinna af mikilli nærgætni og gæta að því að verkferlar séu skýrir. �?g veit ekki betur en til þess að þessir verkferlar séu þeir sömu og lögregla notar um allt land, alla daga ársins, og að þetta sé það besta sem hægt er að gera bæði fyrir sóknarhagsmuni og vellíðan þolenda,” segir Elliði í samtali við Vísi. Lögregla greinir alla jafna ekki frá meintum kynferðisbrotum, en svarar hins vegar fyrirspurnum þegar eftir því er óskað, sem Páley ætlar ekki að gera. Greint var frá því í dag að Páley hyggist viðhalda sama verklagi og í fyrra, að upplýsa ekki um tilkynnt kynferðisbrot. Hefur hún farið þess á leit við Landspítalann að fjölmiðlar verði ekki upplýstir um meint brot, en Landspítalinn hyggst ekki verða við beiðni Páleyjar.
Ýmsir fagaðilar hafa gagnrýnt þessa ákvörðun, en Elliði segir ekki tilefni til að endurskoða hana, þrátt fyrir það.
�??Fagaðilar hafa líka lýst því yfir að þetta sé besta leiðin. Nú er ég sjálfur með mastersgráðu í sálfræði og hef komið að úrvinnslu á málum sem þessum. �?g geri ekki athugasemdir við þá verkferla sem þarna verða viðhafðir og tel þá vera til þess að gæta að hagsmunum fórnarlamba fyrst og fremst og lögreglan segir að þetta gæti að rannsóknarhagsmunum, sé í takt við það sem best er hægt að gera. �?annig að ég geri ekki athugasemdir við það,” segir Elliði.
Hann vísar orðrómi um þöggunartilburði á bug. �??Er einhver þannig innrættur að hann haldi að hagsmunum kynferðisfórnarlamba sé fórnað fyrir hagsmuni �?jóðhátíðar sem haldin er af íþróttafélagi í Vestmannaeyjum? �?g einfaldlega trúi því ekki að nokkur beri slíkt á borð. �?að er allt gert sem hægt er og allir verkferlar eru unnir með hagsmuni fórnarlamba og rannsóknarhagsmuni að leiðarljósi.”
Visir.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Vonbrigði með dýpkun
Framtíðarsýn og faglegt samstarf við uppbyggingu Íþróttamiðstöðvarinnar
Líf og fjör á barnamenningarháíð
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Halla Hrund óskar eftir opnum fundi um stöðu samgangna til Vestmannaeyja
15 ára stelpa úr Eyjum misst 12 daga úr skóla
Aðstæður versnuðu í gær – gluggi í dag
Innviðaráðherra svarar bæjarráði
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.