Um daginn var ég uppi á landi. Góður vinur minn þar spurði mig meðal annars hvort ekki væri allt í lagi í Eyjum? �?g svaraði játandi og í framhaldi af því ræddum við einhver önnur mál sem ég ætla ekki að tíunda hér. Eftir á fór ég hins vegar að velta fyrir mér svari mínu um að allt væri í lagi í Eyjum. Á mig sóttu ýmsar spurningar og svör við þeim.
Er allt í lagi í Eyjum þegar mikilvægt tómstundastarf unglinga er skorið niður, góðu starfsfólki sagt upp og áhrifaríku forvarnarstarfi þar með ógnað?
Er allt í lagi í Eyjum þegar enn og aftur er hafnað þeirri hugmynd að taka upp fístundakort í æskulýðs- og unglingastarfi, frístundakort sem miða að því að gera tómstundastarf auðveldara og aðgengilegra fyrir börn og unglinga óháð efnahag?
Er allt í lagi í Eyjum þegar framsæknum hugmyndum um uppbyggingu í öldrunarmálum, m.a. í tengslum við Hraunbúðir, er hafnað sökum fjárskorts en á sama tíma veitt ómældum milljónatugum til óljósrar uppbyggingar gömlu Fiskiðjunnar?
Er í lagi í Eyjum þegar sífellt er gert lítið úr þeim sem leyfa sér að vera ekki alltaf sammála núverandi meirihluta?
Er í lagi í Eyjum þegar heilsteyptur og heiðarlegur fulltrúi í Framkvæmda- og hafnarráði er með dylgjum, gífuryrðum og ruddaskap sakaður um að vinna gegn bæjarfélaginu vegna þess að hann hefur aðrar skoðanir en meirihlutanum eru þóknanlegar?
Er í lagi í Eyjum þegar fólk veigar sér við að tjá skoðanir sínar á bæjarmálum af ótta við að það bitni á því með einhverjum hætti, jafnvel með atvinnumissi?
Er í lagi í Eyjum þegar reynt er að þagga niður erfið og óþægileg mál vegna þess að allt kapp er lagt á að yfirborðið verði að vera slétt og fellt?
Næst þegar ég verð spurður um hvort ekki sé allt í lagi í Eyjum er ég ekki viss um að svar mitt verði í líkingu við það sem ég gat um hér í upphafi.