Eyja Bryngeirsdóttir valin í stöðu leikskólastjóra Kirkjugerðis
Vestmannaeyjabær hefur valið Eyju Bryngeirsdóttur í stöðu leikskólastjóra Kirkjugerðis.
Eyja mun hefja störf í lok júní og tekur þá við af Bjarneyju Magnúsdóttur. Þetta kemur fram í færslu á facebook síðu Vestmannaeyjabæjar þar segir einnit “Svo skemmtilega vill til að Eyja tók við leikskólastjórastöðunni af Bjarneyju á Sólhvörfum í Kópavogi og svo nú aftur á Kirkjugerði í Vestmannaeyjum.”

Eyja lauk B.Ed. í leikskólakennarfræðum frá Háskólanum á Akureyri árið 2008 og meistaranámi í stjórnun menntastofnanna frá Háskóla Íslands árið 2018. Eyja hóf störf sem leiðbeinandi á leikskólanum Rauðagerði í Vestmannaeyjum 2003-2007, starfaði svo sem deildarstjóri á leikskólanum Kirkjugerði 2007-2014, og svo sem deildarstjóri á leikskólanum Sunnuási í Reykjavík á árunum 2014-2016. Árið 2016 hóf hún störf sem deildarstjóri á leikskólanum Sólhvörfum í Kópavogi, tók þá við sem aðstoðarleikskólastjóri árið 2018 sem hún sinnti til ársins 2019 þegar hún tók við sem leikskólastjóri á Sólhvörfum.

Alls voru fjórir umsækjendur um stöðuna:
– Sigríður Diljá Magnúsdóttir  – Leikskólakennari/deildarstjóri
– Anna Jóna Guðmundsdóttir – Leikskólastjóri
– Ásta Björk Guðnadóttir – Aðstoðarleikskólastjóri
– Eyja Bryngeirsdóttir – Leikskólastjóri

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjar í lykilhlutverki á 100 ára afmæli Landhelgisæslunnar
Þjónustuþegum í lengdri viðveru fjölgar um helming
Frá gamla hrauninu að framkvæmdum við Íþróttamiðstöðina
Stuðningsmaður KFS vinnur 700 þúsund
Vestmannaeyja-Þór ruddi brautina fyrir Landhelgisgæslu Íslands
Klara Káradóttir framlengir við ÍBV
Breyta hlutverki æskulýðs- og tómstundafulltrúa
Æfðu hífingar milli björgunarbáts og þyrlu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.