Eyjafréttir koma út í dag
Forsida EF 1 Tbl 2025

Fullt blað af áhugaverðu efni: Fyrsta tölublað Eyjafrétta þetta árið kemur út í dag, fimmtudag og er að venju stútfullt af áhugaverðu efni. Má þar nefna val á Eyjamanni ársins sem fékk ásamt þremur öðrum  Fréttapýramídann 2024. Ekki er síður áhugaverð úttekt á stórmerku starfi Ingibergs Óskarssonar, 1973 – Allir í bátana.

Þá er athyglisverð fréttaskýring á fjölda sjúkrafluga á síðasta ári. Eyjafólkið er þau sem þóttu skara fram úr hjá ÍBV á síðasta ári. Handboltakonurnar Sandra Erlingsdóttir og Perla Ruth Albertsdóttir reka fyrirtæki sem sérhæfir sig í næringarþjálfun og hefur það að markmiði að bæta samband fólks við mat og styðja það í átt að bættri heilsu og vellíðan.

Í frétt segir að Hafrannsóknastofnun telji óhætt að veiða allt að 59.000 tonn af rauðátu á ári og hefur gefið út kvóta í samræmi við það. Gildruveiðar á bolfisk hefjast við Vestmannaeyjar á þessu ári sem er mjög áhugavert verkefni.

Forsíða: Íris bæjarstjóri, Ingibergur og Valmundur formaður Sjómannasabandsins við athöfn í Eldheimum þegar Ingibergur var heiðraður. Mynd Óskar Pétur.

Hér geta áskrifendur skoðað blaðið.

Hér er hægt að gerast áskrifandi.

Einnig er blaðið selt í lausasölu á Kletti og í Tvistinum.

Nýjustu fréttir

Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.