Eyjamenn bikarmeistarar karla árið 2015
Eyjamenn tryggðu sér í kvöld bikarmeistaratitil karla í handbolta. Strákarnir sigruðu FH-inga með einu marki 23:22. Kolbeinn Aron Arnarsson var stórkostlegur í markinu og tók hann boltana sem skiptu máli.
Enn og aftur eru stuðningsmenn Eyjamanna að toppa sig, þeir virðast setja ný viðmið fyrir hvern leik. Vörn Eyjamanna var ótrúleg í dag og alls ekki síðri en í gær. FH-ingar vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið um miðbik leiksins þegar stemningin var upp á sitt besta.
FH-ingar byrjuðu leikinn betur en þeir skoruðu fyrsta mark leiksins og komust í 1:3. �?á sýndu Eyjamenn sínar bestu hliðar og skoruðu tvö mörk í röð. Aftur tóku FH-ingar tögl og haldir í leiknum, þeir skoruðu mikilvæg mörk og virtust stoppa stórskyttur ÍBV.
Strákarnir okkar voru fjórum mörkum undir þegar fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Stúkan tók við sér á ný og small allt í leik strákanna. Tvær dýrar brottvísanir settu strik í reikninginn hjá FH-ingum en þá gengu Eyjamenn á lagið. Staðan var orðin jöfn í hálfleik 11:11.
Eyjamenn hófu leik í síðari hálfleik tveimur leikmönnum fleiri og tóku forystuna í fyrsta skiptið síðan í stöðunni 4:3. Kolbeinn Aron Arnarsson var að hrökkva í gang og varði meðal annars vítakast í upphafi síðari hálfleiks. ÍBV komst tveimur mörkum yfir, síðan varð munurinn þrjú mörk og loks fimm. �?að var hreint út sagt ótrúleg stemning í Laugardalshöllinni.
Í stöðunni 21:16 héldu flestir að leikurinn væri unninn. FH-ingar minnkuðu muninn snemma í þrjú mörk en þá tok Gunnar Magnússon leikhlé. Leikhléið virkaði mjög vel og komust strákarnir í góð færi sem þeir nýttu. Enn ein vítavarslan hjá Kolbeini leit dagsins ljós og virtist sigurinn í höfn.
FH-ingar minnkuðu loks muninn í eitt mark þegar rúm mínúta var eftir, þá voru FH-ingar með boltann og gátu jafnað leikinn. Allt kom fyrir ekki og Eyjamenn því bikarmeistarar í fyrsta sinn frá árinu 1991. �?að ætlaði allt um koll að keyra í Laugardalshöll og ótrúlegur sigur Eyjamanna staðreynd.
Mörk ÍBV: Agnar Smári Jónsson 4, Andri Heimir Friðriksson 4, Einar Sverrisson 4, Theodór Sigurbjörnsson 4, Grétar �?ór Eyþórsson 3, Guðni Ingvarsson 3, Magnús Stefánsson 1.
Kolbeinn Aron Arnarsson varði nítján skot í marki ÍBV og þar af þrjú vítaköst.

Nýjustu fréttir

Fortíð Vestmannaeyja lifnaði við á sýningu Hlyns
Lundaveiði heimiluð þrátt fyrir neikvæða umsögn Náttúrustofu
Mikilvægur sigur ÍBV gegn Víkingi R.
Terra segir upp samningi við Vestmannaeyjabæ
Dalurinn – nýtt app fyrir þjóðhátíðargesti
Elena Rut – Langar að spila fyrir íslenska landsliðið í framtíðinni
Síld farin að hrygna suður af landinu
Halldór Hjörleifsson er Eyjamaðurinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.