Eyjamenn enda í neðri hlutanum eftir svekkjandi jafntefli
Sverrir Páll var á skotskónum í kvöld.
Úr leik ÍBV og KR fyrr í sumar. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Karlalið ÍBV tók á móti Breiðablik á Kópavogavelli í 22. umferð Bestu deildar karla í kvöld. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en Eyjamenn þurftu á sigri að halda til að vera í efri hluta deildarinnar.

Blikar voru meira með boltann í fyrri hálfleik en áttu í erfiðleikum með að finna opnanir á þéttri vörn Eyjamanna. Á 27. mínútu  leiksins náðu Eyjamenn forystu með marki frá Sverri Pál Hjaltested eftir mikinn darraðadans inn á teig Blika. Staðan 0-1 í hálfleik og Eyjamenn í góðri stöðu. 

Blikarnir áttu nokkur ágætis færi í seinni hálfleik en það var ekki fyrr en á 82. mínútu sem þeir náðu að koma boltanum í netið. Kristinn Jónsson átti þá fyrirgjöf sem Tobias Thomsen stangaði í netið. Eyjamenn fengu tvö ágætis færi undir lok leiks en náðu ekki að gera sér mat úr því. Afar svekkjandi 1-1 jafntefli og Eyjamenn enda í 7. sæti með 29 stig, jafnmörg stig og Fram í 6. sæti en Fram er með betri markatölu. Eyjamenn enda því í neðri hluta deildarinnar. Breiðablik er með 34 stig í 4. sæti. ÍA og Afturelding áttust einnig við í kvöld en það var ÍA sem lyfti sér af botninum með 3-1 sigri.

Leikur ÍBV og Aftureldingar fer fram sunnudaginn 21. september. 23. umferðin fer fram  21. og 22. september og er hægt að sjá hér að neðan hvaða lið mætast. 

Víkingur R. – Fram

Valur – Breiðablik

Stjarnan – FH

Vestri – ÍA

ÍBV – Afturelding

KA – KR

Nýjustu fréttir

Frá Dauðagámnum í Hvíta tjaldið
Mikið fjölmenni við setningu Þjóðhátíðar
Hvítu tjöldin – Baksturinn kemur fjölskyldunni í Þjóðhátíðargírinn
Aldrei neitt sem toppar þessa helgi
Ískaldur bjór og mikill hlátur, þá er allt fullkomið
HSU með sólarhringsviðbúnað yfir Þjóðhátíð
Tveir gistu fangageymslur eftir húkkaraballið
Hver Þjóðhátíð hefur sinn sjarma
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.