Eyjastelpur með flottan sigur á Stjörnunni
Stelpurnar í meistaraflokki kvenna unnu í dag stórkostlegan sigur á Stjörnustúlkum. Eyjastelpur voru yfir allan tímann en Ester �?skarsdóttir var atkvæðamest með ellefu mörk.
ÍBV tók forystuna strax og leikurinn hófst, í nokkurn tíma spiluðu þær besta handboltann sem þær hafa sýnt á leiktíðinni. Liðið stillti upp í hverri sókn og nýtti þann tíma sem var til staðar. Varnarlega voru stelpurnar sterkar og stóðu af sér margar góðar sóknir gestanna.
Í hálfleik var staðan orðin 17-13 stelpunum okkar í vil eftir að þær náðu að nýta sína síðustu sókn í fyrri hálfleik.
Í seinni hálfleik var ÍBV mun sterkari framan af og komust þær í 25-19. �?á kom ömurlegur kafli stelpnanna og minnkuðu Stjörnustúlkur muninn í 26-25 þegar lítið var eftir. Eyjastúlkum tókst að spila út leikinn og lönduðu því gríðarlega mikilvægum stigum í toppbaráttunni.
Ester �?skarsdóttir skoraði eins og áður segir ellefu mörk, næstar henni voru Díana Dögg Magnúsdóttir með fimm og Vera Lopes með fjögur.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.