Ferðaþjónustufyrirtæki fara í vaskinn
137869829
Mountain guide helping group cross crevasse in gla
�?að hefur vart farið fram hjá aðilum í ferðaþjónustu að skattumhverfi þeirra er að breytast töluvert nú um áramótin. Undanfarið hefur KPMG staðið fyrir námskeiðum um virðisaukaskatt fyrir þessa aðila og er ljóst að margir aðilar átta sig ekki á umfangi þeirra breytinga sem gera þarf bæði á bókhaldi og verklagi í rekstri ferðaþjónustufyrirtækja s.s. vegna útgáfu á þjónustubeiðnum (e. voucher) fyrir dagsferðum sem og innheimtu á gjaldi fyrir pakkaferðir sem samanstanda af margvíslegum tegundum afþreyingar og þjónustu. Einnig virðist ríkja ákveðinn misskilningur hjá ferðaþjónustuaðilum varðandi það skatthlutfall sem þeim beri að innheimta. Margir halda að ferðaþjónustan sé að fara að innheimta 11% af öllu sem verið er að bjóða uppá og að það séu að koma sérstakar reglur um ferðaþjónustuna frá ríkisvaldinu.
Á námskeiðinu sem KPMG heldur föstudaginn 2. nóvember frá kl. 9:00-12:00 í Alþýðuhúsinu, er farið yfir þessi atriði og þessi misskilningur leiðréttur ásamt því sem farið er yfir hvernig eigi að gefa út reikninga fyrir pakkaferðum og í hvaða skatthlutföllum ýmiss konar þjónusta er. Einnig er fari yfir hvernig breyta þurfi bókhaldi og hvort gera þurfi breytingar á bókunarkerfum sem verið er að nota.
Skráning og frekari upplýsingar um námskeiðið má finna á www.kpmg.is

Nýjustu fréttir

Áfall fyrir ÍBV – Amalia Frøland með slitið krossband
Meiri sandur í höfninni – dýpkun hefst í fyrramálið
Maí sól – Lag til ömmustelpurnar
Styrkir veittir til fjölbreyttra verkefna
Neyðarkall úr Eyjum
Sigmundur Davíð með opinn fund
Hæsti styrkurinn til Eyja
Dýptarmæling í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.