Í bæjarráði í gær var samþykkt að selja fjórðu hæð Fiskiðjuhússins og Vigtarhúsið sem er norðuhluti hússins þar sem Miðstöðin er til húsa. �?að var fyrirtækið Eyjablikk ehf. sem keypti hlutinn í Fiskiðjunni. �?stofnað hlutafélag Daða Pálssonar, eins af eigendum Godthaab og Sigurjóns Ingvarssonar, skipstjóra og stýrimanns með meiru keypti hins vegar Vigtarhúsið.
Á fundinum lá fyrir tilboð í fjórðu hæð Fiskiðjunnar, sem er 615,4 fm upp á 42.750.000 kr. Bærinn eignaðist Fiskiðjuna eftir eldsvoða 2007. Alls er Fiskiðjan 4200 fm og hefur verið að drabbast niður með árunum. �??
Í samræmi við skipulagsráðgjöf Alta og miðbæjarskipulag Vestmannaeyja tók Vestmannaeyjabær ákvörðun um að endurgera húsnæðið sem næst upprunalegu útliti og nýta til vaxtar í stað þess að láta það grotna niður fyrir augum bæjarbúa og gesta. Fyrirliggjandi tilboð er gert með það að markmiði að styðja við þær hugmyndir,�?? segir m.a. í fundargerð og var tilboðið samþykkt.
Fyrir bæjarráði lágu tvö kauptilboð í Vigtarhúsið sem er 740,9 fm skv. fasteignaskrá, þar af kjallari sem er 410 fm. Hærra tilboðið hljóðaði upp á 16.000.000 kr. og var samþykkt. Húsinu fylgja skipulagskvaðir um að á jarðhæð skuli rekin miðbæjartengd starfsemi svo sem verslun, þjónusta, veitingasala eða svipaður rekstur. �?á liggur einnig fyrir byggingaréttur um hæðir ofan á húsið.
Nánar í Eyjafréttum.