Fjórði fjármálaráðherrann gerir atlögu að Eyjamönnum
Kortið góða sem Íris minnist á.

Vestmanneyingar standa í lítilli þökk við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, sem í síðustu ríkisstjórn hafði stuttan stans í fjármálaráðuneytinu. Í Vestmannaeyjum er hennar helst minnst fyrir að vilja koma Vestmannaeyjum öllum utan smá skika á Heimaey í ríkiseigu.

Þeir hjuggu í sama knérunn sem fjármálaráðherrar, Sigurður Ingi, þingmaður Suðurlands og Bjarni Benediktsson. „Og áfram skal haldið að hálfu ríkisins,“ segir Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum á Fébókarsíðu sinni og nú er það Daði Már Kristófersson, nýr fjármálaráðherra í ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sem hefur tekið við keflinu. Bréf frá lögfræðistofu á síðu óbyggðanefndar staðfestir þetta en það hefur enn ekki borist bæjaryfirvöldum í Vestmannaeyjum.

„Á kortinu sést í dökkbláum lit það sem fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisins er enn að gera kröfu um, það eru að allar úteyjar Vestmannaeyja verði eign ríkisins og gerðar að þjóðlendum,“ segir Íris. „Ríkið er reyndar hætt við Heimaklett og brekkurnar í Herjólfsdal. En það hlýtur að vera hægt að verja fjármunum ríkisins í þarfari verkefni? Hver er tilgangurinn?“ spyr Íris og er hægt að taka undið þau orð.

 

 

 

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.