�?ak fauk af íbúðar­húsi

Sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Slysa­varn­ar­fé­lag­inu Lands­björgu sinna nú ríf­lega 500 manns frá björg­un­ar­sveit­um fé­lags­ins nú lok­un­um vega, óveðursút­köll­um eða eru í viðbragðsstöðu vegna veðurs­ins sem nú geng­ur yfir landið. �??Í Vest­manna­eyj­um fauk þak af íbúðar­húsi við Smára­götu og lenti í heilu lagi á lóð rétt hjá. Húsið er stór­skemmt og ekki talið ör­uggt fyr­ir björg­un­ar­menn að […]

Landsnet í viðbragðsstöðu

Aukinn viðbúnaður er í stjórnstöð Landsnets og viðgerðarflokkar eru í viðbragðsstöðu vegna ofsaveðurs eða fárviðris sem spáð er að gangi yfir landið síðdegis í dag og í kvöld. Vegna óveðursins má búast við að truflanir geti orðið í raforkuflutningskerfinu víða um land síðdegis og í kvöld. Einkum á það við um Suður- og Suðausturland og […]

Leikið á morgun

Leik ÍBV og Akureyrar sem fram átti að fara í dag hefur verið frestað vegna veðurs. Nýr leiktími hefur verið fundin og verður leikurinn spilaður á morgun klukkan 18:00. (meira…)

Vegna óveðurs er breyttur opnunartími á heilsugæslu HSU á Selfossi og í Vestmannaeyjum

Vegna afleitrar veðurspár og yfirvofandi óveðurs verður breyttur opnunartími á heilsugæslu HSU á Selfossi og í Vestmannaeyjum. Síðdegismóttaka heilsugæslulækna á HSU á Selfossi verður lokuð í dag. Bráðamóttaka HSU á Selfossi er opin og þar er tekið á móti bráðatilfellum. Heilsugæslan í Vestmannaeyjum er lokuð í dag eftir klukkan 14 en vaktþjónusta er óbreytt á […]

Tilkynning frá Lögreglunni í Vestmannaeyjum

OLYMPUS DIGITAL CAMERA

Nú lítur út fyrir það að veðurspáin gangi eftir og eigum við von á fárviðri hér í Eyjum síðari hluta dagsins í dag 7. desember. Búist er við vindhraða upp í 40 m/sek í hreinni austan átt og mun lægja undir miðnætti. Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra hefur lýst yfir óvissustigi fyrir allt landið. �?að almannavarnastig þýðir að […]

Eyjamenn í viðbragðsstöðu vegna væntanlegs vonskuveðurs

�??Skíthræðsla er ekki til neins. Góður undirbúningur og skynsemi er langtum betri. Við vitum að þetta getur orðið slæmt og verðum að vera klár í að bregðast við,�?? segir Elliði Vignisson bæjarstjóri í Eyjum. �?etta eru viðbrögð Elliða við þeim yfirlýsingum blaðamanns að hann væri skíthræddur ef hann væri úti í Eyjum núna, vonskuveður er […]

�?tibúi Íslandsbanka lokað klukkan 13:00

�?tibúi Íslandsbanka verður lokað eftir hádegi í dag mánudaginn 7. desember vegna viðvarana Almannavarna �?jónustuverið er opið til 17:00 – sími 440 4000 Í �?jónustuverinu geta einstaklingar og fyrirtæki fengið alla almenna bankaþjónustu. (meira…)

Landsbankinn lokar klukkan 13:00

Vegna afleitrar veðurspár seinnipartinn, verður útibúi Landsbankans í Eyjum, lokað kl. 13 í dag. Hið sama má segja um útibúin á Hornafirði, Hvolsvelli, Reykholti, �?orlákshöfn, Selfossi, Grindavík og í Keflavík (Reykjanesbæ) segir í tilkynningu frá Landsbankanum. (meira…)

Helgileik Kirkjustarfs fatlaðra frestað

Vegna slæmrar veðurspár í dag hefur Helgileik kirkjustarfs fatlaðra sem vera átti í dag mánudaginn 7. desember kl. 18:00 í Landakirkju verið frestað um viku eða til mánudagsins 14. desember kl. 18:00. Er þetta gert til að tryggja öryggi áhorfenda en um leið einnig leikaranna, en þeir hafa lagt á sig mikla vinnu við undirbúninginn. […]

�?fingar falla niður

Vegna vonsku veðurs sem á að vera í dag þá verða engar æfingar í barna og unglingaflokkum ÍBV íþróttafélags. Al­manna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra seg­ir ofsa­veðrið, sem spáð hef­ur verið, muni skella á suðurland um og eftir hádegi og því ekki ráðlegt að vera á ferðinni. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.