Flug til Vestmannaeyja og Húsavíkur boðið út næsta vetur

Flug verður styrkt yfir vetrarmánuðina desember til og með febrúar:

Flug til Húsavíkur og Vestmannaeyja yfir vetrarmánuðina desember til febrúarloka verður boðið út fyrir næsta vetur. Þess misskilning hefur gætt að halda ætti út ríkisstyrktu flugi á heilsársgrundvelli. Það hefur ekki staðið til en sú nýjung að styrkja flug yfir þessa vetrar mánuði hefur verið tekin.

Fyrr í vetur voru gerðir samningar um flug út febrúar og síðan með mánaðarframlengingu út mars til þess að koma til móts við íbúa yfir erfiðustu vetrarmánuðina þegar aðrar samgöngur voru síður áreiðanlegar.
Samgöngur frá Vestmannaeyjum til Landeyjahafnar hafa verið óvenjulega erfiðar á þessum vetri til dæmis.  Nú hefur verið tekin sú ákvörðun að halda áfram með þetta fyrirkomulag og bjóða flug út flug  á þessa tvo staði fyrir mánuðina desember – febrúar með sveigjanleika þannig að bregðast megi við tímabundið ef um óvenjulega erfitt tíðarfar er að ræða.

Þetta er nýjung því ríkisstyrkt flug hefur eingöngu verið á þessa staði sem viðbragð við tímabundnum erfiðleikum. Auðvitað væri æskilegt ef markaðurinn sæi sér fært að sinna þessari þjónustu lengur en sem svarar tímabilinu þar sem ríkisstyrkja nýtur, en það verður að koma í ljós.

Það er kominn sá fyrirsjáanleiki í flug á þessa staði þannig að áform eru um að fljúga með ríkisstyrk þessa mánuði og það útboðsferli er komið í gang með það að markmiði að semja um þjónustuna.

Frétt frá Vegagerðinni.

Nýjustu fréttir

Bærinn grípur til aðgerða til að fækka bjargdúfum
Í mörg horn að líta um borð í Kap VE
Mikill munur á æfingagjöldum barna
Ný byrjun hjá Vinum í bata
Herjólfur breytir áætlun á morgun
Meira unnið í salt en á öllu síðasta ári
Breyttar innheimtureglur leikskóla samþykktar
Nýtt og betra ON app komið í loftið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.