Frábær sigur ÍBV á útivelli gegn Breiðablik
Úr leik ÍBV og Stjörnunnar á Hásteinsvelli. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV og Breiðablik mættust í 17. umferð Bestu deildar kvenna á Eikarvellinum í Kópavogi í dag þar sem ÍBV vann frábæran 1-2 sigur.

Eyjakonur mættu beittar til leiks og fengu nokkur færi til að komast yfir snemma í leiknum. Blikar björguðu á línu í tvígang, fyrst frá Eddu Dögg Sindradóttur og svo frá Allison Grace Lowrey. 

Allison Grace Lowrey kom ÍBV yfir á lokamínútu fyrri hálfleiks. Guðný Geirsdóttir átti þá langa sendingu fram allan völlinn og Allison Clark flikkaði boltanum áfram á nöfnu sína sem náði að koma boltanum í netið, af mikilli harðfylgni. ÍBV fór því með 0-1 forystu í hálfleik. 

Eyjakonur tvöfölduðu forystu sína seint í síðari hálfleik. Viktorija Zaicikova sendi boltann þá inn fyrir vörn Breiðabliks og Fridrikka Marie Clementsen setti boltann örugglega í markið, framhjá Taylor Kane markverði Breiðabliks. 

Blikar klóruðu í bakkann aðeins tveimur mínútum síðar þegar Elísa Viðarsdóttir minnkaði muninn. Nær komust Blikar þó ekki og því 1-2 útisigur ÍBV staðreynd. 

Með sigrinum fór ÍBV upp í þriðja sæti deildarinnar og eru nú með 27 stig. Breiðablik er á toppnum með 36 stig. FH spilar gegn Val á morgun og geta jafnað Breiðablik að stigum. 

Breiðablik 1 – 2 ÍBV

0-1 Allison Grace Lowrey (’45 )

0-2 Fridrikka Marie Clementsen (’84 )

1-2 Elísa Viðarsdóttir (’86 )

Önnur úrslit í 17. umferð:

Fram 3 – 2 Stjarnan

Víkingur R. 3 – 0 Grindavík/Njarðvík

Þróttur R. 0 – 0 Þór/KA

 

 

Nýjustu fréttir

Frábær sigur ÍBV á útivelli gegn Breiðablik
ÍBV í fallsæti eftir tap á heimavelli gegn Þór
Þór bjargaði fólki úr sjálfheldu í Reynisfjöru
Fleiri utankjörfundaratkvæði en í vor
Kjördagur í Vestmannaeyjum – 241 höfðu kosið klukkan 11
Styrkleikarnir í Herjólfsdal í dag
Á bak við tjöldin hjá Laxey í Viðlagafjöru
Djúpur tunglmyrkvi yfir Vestmannaeyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.