Strákarnir í meistaraflokki ÍBV tóku þátt í frábærum frestuðum leik á Akureyri í gær þar sem að liðið sneri nánast töpuðum leik í sigur. Að lokum munaði einungis einu marki á liðunum þar sem lokatölur voru 27:26 fyrir ÍBV. Í hálfleik leiddu heimamenn með fjórum mörkum 14:10.
Í byrjun síðari hálfleiks héldu heimamenn áfram og voru með fimm marka forystu í stöðunni 19:14. �?egar 19 mínútur voru eftir tók Arnar Pétursson leikhlé, fimm mörkum undir. �?etta leikhlé er líklega það besta á tímabilinu þar sem næstu mínútur voru ótrúlegar. ÍBV skoraði ellefu mörk gegn einu frá heimamönnum. �?eir voru því fimm mörkum yfir 20:25, þetta hlýtur að vera einn besti viðsnúningur í íslenskum handbolta.
ÍBV leiddi með þremur mörkum þegar Arnar tók annað leikhlé þegar rétt tæp mínúta var eftir, eftir það skoruðu heimamenn tvö mörk og náðu að minnka forskotið niður í eitt mark. Nær komust þeir ekki og Eyjamenn fögnuðu því dýrmætum sigri.
Theodór Sigurbjörnsson skoraði átta mörk og Stephen Nielsen varði átta af þeim sautján skotum sem hann fékk á sig en hann var góður á þeim kafla þegar ÍBV tók öll völd.