Framkvæmdir við dreifikerfi HS Veitna hf. á Strandvegi
Unnið er að því að koma rörum fyrir í Strandvegi, frá tengistöð sem verið er að byggja við bræðslu Ísfélagins að Skildingavegi. Eru þetta um 400 metrar og verður verkið unnið í sex
áföngum og þess gætt að valda sem minnstri truflun. �?að eru HS-veitur sem sjá um framkvæmdina og verða alls 33 rör frá tengivirki að Miðstöðinni og 22 að Skildingavegi. Í gegnum þau er hægt að draga rafmagnskapla, ljósleiðara og aðra strengi og gera við og skipta um án þess að grafa þurfi upp götuna. Byrjað var fyrir framan Ísfélagið og er þetta talsverð
framkvæmd. �??�?essum kafla, frá Ísfélagi að Skildingvegi á að verða lokið fyrir lok maí og verður þess gætt að trufla sem minnst aðgengi að verslunum og þjónustu við Strandveginn. Seinna verður svo grafið í austur, frá Ísfélagi að tengivirkinu,�?? sagði Sigurður Sveinsson, verkstjóri hjá HS Veitum. �?egar tengivirkið, sem er verið að byggja við FES, verður tilbúið verður grafið niður Skildingaveg og rafskautakatlar HS Veitna hf og Vinnslustöðvar tengdir við nýja tengivirkið. �??Við ætlum að ljúka hverjum áfanga að fullu, með frágangi á malbiki og gangstéttum. �?að dregst kannski aðeins að malbika fyrsta áfanga vegna samgangna, en þegar Landeyjahöfn verður komin í gagnið verður það ekkert mál�?? sagði
Sigurður. �??Mig langar að nota þetta tækifæri til að biðja vegfarendur að fara varlega í kringum skurðstæðin og taka tillit til verktaka á meðan framkvæmdir standa yfir�?? sagði
Sigurður að lokum. Reiknað er með verklokum um mánaðarmótin maí/júní.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.