Frum­varp um útboð á nýrri Vest­manna­eyja­ferju
Mbl.is greindi frá því í dag að frum­varp um heim­ild til útboðs vegna nýrr­ar Vest­manna­eyja­ferju sem á að leysa Herjólf að hólmi hef­ur verið lagt fram á Alþingi. Verði það óbreytt að lög­um má gera ráð fyr­ir að kostnaður rík­is­ins vegna kaupa á nýrri ferju nemi allt að 4,8 millj­örðum króna. Nýj­an ferj­an á að vera hag­kvæm­ari í rekstri og með hærra þjón­ustu­stig.
Með frum­varpi fjár­málaráðherra er Vega­gerðinni veitt heim­ild til að láta fara fram útboð þar sem valið stend­ur á milli þess að gerður verði þjón­ustu­samn­ing­ur um smíði og rekst­ur skips til allt að tólf ára eða að samið verði um smíði skips fyr­ir allt að 4,8 millj­arða á verðlagi í árs­lok 2015. Vega­gerðin má ganga að hag­kvæm­asta til­boði í hvorn kost­inn sem er enda liggi fyr­ir full­nægj­andi fjár­heim­ild­ir til verks­ins eða tryggt sé að samn­ing­ur sé með skýr­um fyr­ir­vara um það.
Gert er ráð fyr­ir að við lok hins tólf ára frests eign­ist ríkið skipið á hra­kv­irði sem nem­ur um 36% af væntu kaup­verði. Með öðrum orðum er gert ráð fyr­ir að rík­is­sjóður kaupi skipið fyr­ir um 1,4 mia.kr. á verðlagi fjár­laga 2016 en til þess þyrfti þá sér­staka fjár­heim­ild þegar þar að kem­ur.
Sú hönn­un sem fyr­ir liggi, m.a. djúprista og skrokklag, miðist við þær aðstæður sem eru í Land­eyja­höfn. �?tboðsgögn geri ráð fyr­ir 69 metra langri ferju sem get­ur flutt 540 farþega. Ferj­an verði álíka stór og Herjólf­ur en taki fleiri bif­reiðar í hverri ferð eða 72 í stað tæp­lega 60 bif­reiða. Ferj­an risti hins veg­ar mun grynnra en Herjólf­ur, eða 2,8 metra í stað 4,3 metra. Ferj­an muni geta siglt til �?or­láks­hafn­ar við erfiðar aðstæður á aðeins 5�??10 mín­útna lengri tíma en Herjólf­ur. Sam­kvæmt áætl­un­um Vega­gerðar­inn­ar sé gert ráð fyr­ir að ný ferja geti siglt til Land­eyja­hafn­ar í 76�??89% til­vika á ári eða 84% sam­kvæmt miðspá.
Verði frum­varpið að lög­um er gert ráð fyr­ir að hægt verði að aug­lýsa útboðið í sum­ar­byrj­un og að hægt verði að opna það síðsum­ars eða í haust. Reikna má með 2�??3 mánuðum í að meta til­boð og und­ir­búa samn­ings­gerð. Miðað við það má gera ráð fyr­ir að hægt verði að samþykkja ásætt­an­legt til­boð og rita und­ir samn­ing á vetr­ar­mánuðum. Í útboðsgögn­um verður gert ráð fyr­ir að af­hend­ing ferj­unn­ar verði um mitt ár 2018 eða fyrr ef kost­ur er. Á móti út­gjöld­un­um er gert ráð fyr­ir að tekj­ur rík­is­ins af sölu á gamla Herjólfi geti numið um 500�??700 m.kr.

Nýjustu fréttir

Aníta Sif er Eyjamaður mánaðarins
Samfélag fyrir fjölskyldur
ÍBV tapaði gegn Haukum – Oddaleikur framundan
Kvennalið ÍBV byrjar Bestu deildina á sigri
Allir út að plokka á Heimaey á morgun
Spurt og svarað: Guðbjörg Sól frá Sjálfstæðisflokknum
VSV á stórsýningu í Barcelona: „Mikilvægt að vera sýnileg“
Vorhátíð Landakirkju
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.