Fullu dýpi náð í Landeyjahöfn
4. apríl, 2022

Herjólfur ohf. hóf að sigla sjö ferðir á dag í Landeyjahöfn laugardaginn 2. apríl. Fjarlægja þurfti 15 þúsund rúmmetra af sandi til að opna höfnina, en fyrir þann tíma höfðu siglingarnar verið háðar sjávarföllum og farnar fjórar ferðir á dag. Dýpkunarskipið Dísa verður að störfum út apríl. Dýpkun í höfninni frá september og fram í maí verður boðin út í vor. Þetta kemur fram í frétt á vef vegagerðarinnar.

Nýting Landeyjahafnar hefur verið með minna móti þennan vetur vegna veðurs. Herjólfur fór aðeins 34 ferðir til Landeyjahafnar í janúar, 92 ferðir til Þorlákshafnar og tvo daga var ekkert siglt. Til samanburðar voru farnar 286 ferðir til Landeyjahafnar og 20 til Þorlákshafnar í janúar 2021.

Dýpi við höfnina hefur verið takmarkað í vetur enda geta dýpkunarskip ekki athafnað sig í mynni Landeyjahafnar þegar ölduhæð er yfir 1,5 m. Veður voru mjög óhagstæð fyrstu mánuði ársins og ölduhæð almennt yfir mörkum. Aðeins tvisvar gafst veður til dýpkunar í einn dag í senn.

Dýpkunarskipið Dísa frá fyrirtækinu Björgun ehf. hóf dýpkun í Landeyjahöfn 24. mars síðastliðinn. Eftir tvo daga þurfti það frá að hverfa á ný vegna veðurs. Það hóf aftur dýpkun 30. mars þegar aldan datt niður og hefur náð að vinna óslitið síðan.

Fjarlægja þurfti 15. þúsund rúmmetra til að opna höfnina og tókst það laugardaginn 2. apríl. Þann dag hóf Herjólfur ohf. að sigla sjö ferðir á dag en fyrir þann tíma höfðu siglingar verið háðar sjávarföllum og farnar fjórar ferðir daglega.

Haldið verður áfram við dýpkun í höfninni næstu vikur en mánudaginn 4. apríl var búið að fjarlægja 22.300 rúmmetra. Fyrst um sinn verður lögð áhersla á dýpka hafnarmynnið í 8 metra. Næst verður innri höfnin hreinsuð  þannig að hún verði 5,5 metra djúp við lægstu sjávarstöðu. Fyrir framan garðana verður dýptin 7 metrar. Stefnt er á að ljúka við dýpkun í lok apríl eða byrjun maí.

Gert er ráð fyrir að þessi dýpkun muni duga fram í september en Vegagerðin fylgist þó áfram vel með dýpi í og við höfnina í sumar.

Dýpkun hafnarinnar verður boðin út að nýju í vor. Í útboðinu verður gerð krafa um að lágmarks afkastageta skipsins sem sinnir dýpkuninni verði 10 þúsund rúmmetrar á sólarhring í hafnarmynninu. Sú breyting verður nú gerð að boðin verður út dýpkun fyrir tímabilið september og fram í maí. Áður voru boðnar út dýpkanir frá september fram í nóvember, og síðan frá mars fram í maí enda gat Herjólfur III ekki nýtt höfnina að vetri til þar sem hann risti mun dýpra en núverandi skip.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst