Skömmu eftir hádegi í dag var tekin skóflustunga að nýju og glæsilegu útisvæði við sundlaug Vestmannaeyja. Búið er að fullhanna svæðið og verða m.a. tvær stórar rennibrautir á svæðinu, tvær vaðlaugar, þrír heitir pottar og sérstök barnarennibraut. Svæðið verður allt hannað með sögu Vestmannaeyja og verður eldfjall á útisvæðinu.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst