Fyrsta smitið staðfest í Vestmannaeyjum

Aðgerðastjórn almannavarna var virkjuð í Vestmannaeyjum í dag þetta kemur fram á facebook síður Lögreglunnar í Vestmannaeyjum. Það kemur einnig fram að einstaklingum í sóttkví í Vestmannaeyjum hefur fjölgað og eru nú 18 í sóttkví í Vestmannaeyjum og viðbúið að þeim muni halda áfram að fjölga á næstunni.

Fyrsti smitaði einstaklingurinn í Vestmannaeyjum var greindur síðdegis í dag. Um lögreglumann er að ræða sem smitaðist ekki við störf sín svo vitað sé. Smitrakning er í gangi af hálfu rakningarteymis almannavarna.

Nýjustu fréttir

Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.