�?órður Rafn Sigurðsson hóf útgerð 15. maí 1975 en hann skrifaði undir samning á sínu fimmta skipi í Póllandi á föstudaginn. Nýr Dala-Rafn er systurskip Vestmannaeyjar og Bergeyjar og á að vera tilbúinn í byrjun næsta árs.
�?órður hefur síðustu árin einbeitt sér að togveiðum en á fyrstu bátunum var hann á þorskanetum, reknetum til síldveiða, síldarnót og togveiðum. �?�?að er ekki nema eðlilegt að hugsa upp á við í rekstri og það erum við að gera,�? sagði Rabbi þegar hann var spurður um ástæðu þess að hann er nú að kaupa nýtt skip.
�?Mér þykir gaman að útgerð og þetta er líka mitt áhugamál. �?g hlakka til að fá nýtt, öflugra og betra skip fyrir mannskapinn,�? bætti Rabbi við.
Nýr Dala-Rafn á samkvæmt samningi að vera tilbúinn í janúar en �?órður Rafn segir ekki óeðlilegt að það gæti dregist fram í febrúar.
Viðtalið birtist í heild sinni í Fréttum.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.