Gangurinn í sjávarútvegi framar vonum
25. febrúar, 2021

Eins og títt kom fram í fréttum á Radarnum á árinu 2020, þá fór sjávarútvegur ekki varhluta af ástandinu í heimsbúskapnum vegna COVID-19 og tilheyrandi sóttvarnaraðgerða. Í heildina litið var ástandið þó bærilegra en í mörgum öðrum atvinnugreinum. Í því samhengi hefur það vissulega áhrif að fólk þarf að borða, sama hvernig allt í veröldinni veltist. Það er þó fjarri því sjálfgefið að hægt sé að veiða og koma afurðum á markað og selja í árferði sem þessu, til þess þarf þekkingu, þrautseigju og áræðni. Þegar litið er á tölur fyrir árið í heild má segja að vel hafi tekist til í sjávarútvegi á árinu 2020. Jafnframt varð útkoman margfalt betri en á horfðist í fyrstu þegar faraldurinn skall á. Er nærtækast að nefna að í fyrstu hagspám sem birtar voru eftir að faraldurinn skall á, var gert ráð fyrir einum mesta samdrætti í sjávarútvegi sem orðið hefur í nær fjóra áratugi á árinu 2020. Sú varð ekki raunin, sem betur fer!

Aukning í krónum, samdráttur í erlendri mynt
Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam 270 milljörðum króna á árinu 2020 og jókst um 10 milljarða frá fyrra ári. Jafngildir það aukningu upp á tæp 4% í krónum talið. Aukningin skrifast öll á þá lækkun sem varð á gengi krónunnar, enda dróst útflutningsverðmæti sjávarafurða saman um tæp 7% í erlendri mynt. Samdráttinn má helst rekja til rúmlega 4% samdráttar í útfluttu magni. Þar spilar COVID-19 að sjálfsögðu hlutverk, en erfitt er að festa fingur nákvæmlega á hversu mikil þau áhrif voru. Áhrifin af loðnubresti voru þó talsverð, sem kann að koma mörgum spánskt fyrir sjónir þar sem loðnubrestur varð annað árið í röð. Ástæða þess er að talsvert hafði verið um birgðasölu á árinu 2019, sér í lagi á frystum loðnuhrognum sem er verðmæt afurð.

Aðstæður á mörkuðum versnuðu til muna á árinu 2020 vegna COVID-19 og var verð á sjávarafurðum að jafnaði ríflega 2% lægra á árinu 2020 en 2019, mælt í erlendri mynt. Sú lækkun er vissulega ekki ýkja mikil þegar litið er á árið í heild, en áður en COVID-19 skall á hafði verið talsverð verðhækkun sem hefur áhrif á meðalverð á árinu. Sveiflur innan ársins voru því mun meiri og er hér nærtækast að nefna þá breytingu sem varð á árstakti verðvísitölu sjávarafurða sem Hagstofan birtir mánaðarlega. Í janúar 2020 sýndi tólf mánaða taktur verðvísitölunnar tæplega 9% hækkun á sjávarafurðum í erlendri mynt, en í desember var hann komin niður í tæp 8% lækkun.

Nánar um þessar tölur og meira til má finna á mælaborði Radarsins um útflutning. Þar hafa allar tölur verið uppfærðar til ársins 2020, auk þess sem myndum hefur verið fjölgað, framsetning talna breyst og umfjöllun er ítarlegri en áður.

Fiskur drjúgur í útflutningstekjum
Samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar námu útflutningstekjur þjóðarbúsins vegna vöru- og þjónustuviðskipta rétt rúmlega 1.000 milljörðum króna á árinu 2020. Það er um 33% samdráttur frá árinu 2019 á föstu gengi, en á þann kvarða hafa útflutningstekjur þjóðarbúsins ekki verið minni frá árinu 2013. Áhrifin af COVID-19 sjást hjá flestum útflutningsgreinum, en áhrifin voru vissulega mismikil eins og blasir við á myndinni hér fyrir neðan.

Á undanförnum árum hafa sjávarafurðir vegið tæplega fimmtung af gjaldeyristekjum þjóðarbúsins af vöru- og þjónustuviðskiptum. Á árinu 2020 var vægi sjávarafurða í útflutningstekjum 27% og hefur það hlutfall ekki verið hærra frá árinu 2009. Þessi aukna hlutdeild er vissulega ekkert sérstakt fagnaðarefni enda kemur hún ekki til af góðu, einkum vegna verulegs samdráttar í tekjum annarra mikilvægra útflutningsgreina, sér í lagi ferðaþjónustu. Fiskeldi var ein fárra útflutningsgreina sem aflaði meiri gjaldeyristekna á árinu 2020 en 2019, eins og kom fram á Radarnum nýverið. Er því ljóst að fiskur var drjúgur í útflutningstölum ársins 2020, en samanlögð hlutdeild sjávar- og eldisafurða af gjaldeyristekjum þjóðarbúsins var 30% á árinu 2020.

Sterkar stoðir
Reiknað var með 12% samdrætti í útflutningi á sjávarafurðum í fyrstu spám sem birtar voru eftir að faraldurinn skall á. Raunin varð rúmlega 4% samdráttur, eins og á undan greinir. Hefðu spár ræst, hefði útflutningsverðmæti sjávarafurða verið um 22 milljörðum króna minna á árinu 2020 en raunin varð, að öðru óbreyttu. Það munar um minna!

Þegar öllu er á botninn hvolft er ljóst að sveigjanleiki íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja og styrkur þess skipulags sem greinin býr við, skipti þar sköpum. Í því felst meðal annars:

  • Sjávarafurðir eru afar fjölbreyttar, bæði hvað varðar tegundir og vinnsluafurðir. Ólíkir afurðaflokkar sömu fisktegunda endurspegla sveigjanleika, það er að svigrúm sé til tilfærslu á milli afurðaflokka innan sömu tegunda eftir aðstæðum. Þetta kemur sér afar vel þegar markaðir umturnast á skömmum tíma, líkt og í fyrra, enda eru áhrifin mikil þegar stór hluti jarðarbúa sætir útgöngubanni og hótelum og veitingastöðum er lokað víða um lönd. Þannig getur spurn eftir ákveðnum afurðum dottið niður á sama tíma og hún eykst eftir öðrum.
  • Áhersla sjávarútvegsfyrirtækja á að sækja á fleiri og ólíka markaði er ekki síður mikilvægur eiginleiki, enda er hægara um vik að bregðast við og leita annað þegar viðskiptasambönd liggja víða. Vissulega lét faraldurinn engin lönd ósnortin, en áhrifin voru mismunandi á milli landa á sama tíma.
  • Vel fjármögnuð fyrirtæki eru langtum líklegri til að standa af sér viðlíka ástand og uppi hefur verið. Íslenskur sjávarútvegur óskaði ekki eftir neinni aðstoð frá ríkinu í fyrra á sama tíma og keppst var við að dæla fjármunum skattgreiðenda inn í sjávarútveg vegna faldaldursins beggja vegna Atlantshafs.
  • Svo er það aflamarkskerfið, sem tryggir fyrirtækjum rétt til veiða á tilteknu magni innan fiskveiðiársins, ásamt samþættingu veiða og vinnslu og órofinni virðiskeðju allt til erlendra kaupenda sjávarafurða. Er hér nærtækt að nefna að hin íslenska virðiskeðja fyrir þorskafurðir er að öllu leyti markaðsdrifin þar sem kröfur neytenda ráða ferðinni. Því er nauðsynlegt fyrir fyrirtæki að hafa sýn yfir allt ferlið, allt frá skipulagi veiða til lokasölu, svo hámarka megi verðmæti afurða.

Ofangreindir eiginleikar íslenska fiskveiðistjórnunarkerfisins og staða fyrirtækja gegndi vafalaust sóru hlutverki í aðlögun sjávarútvegs að nýjum og krefjandi veruleika. Það hefur sjaldan verið mikilvægara fyrir þjóðarbúið en á hinu fordæmalausa ári 2020!

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.