Geðlestin á ferð í Eyjum
DSC 2084
Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Í tilefni af Gulum september ferðast landssamtökin Geðhjálp um landið og bjóða upp á samtal um geðrækt og geðheilsu í bland við tónlist og gleði.

Geðlestin er heiti verkefnisins en það hefur áður farið um landið en þá var áherslan á börn og ungmenni. Núna er ætlunin að hitta sveitarstjórnir, félags- og skólamálayfirvöld annars vegar og almenning hins vegar.

Geðlestin kom í safnaðarheimili Landakirkju á fimmtudaginn sl. og var það bæði fræðandi og skemmtileg kvöldstund. Í lokin stigu þeir félagar Emmsjé Gauti og Þormóður á svið og léku nokkur lög til að árétta að geðrækt er líka gleði og skemmtun. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari leit þar við og smellti meðfylgjandi myndum.

Nýjustu fréttir

Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi – Samfylkingin styrkir stöðu sína
Staðfesta synjun á gagnabeiðni Eyjafrétta
Leggja til tvöfalt meiri makrílveiði á næsta ári
Góður afli en erfiðlega gekk að finna ýsu
Framkvæmdir víða um bæinn – myndband
Má skipta liði?
Síldarveiðar í fullum gangi hjá Vinnslustöðinni
Emil og félagar í U17 áfram í næstu umferð undankeppni EM 2027
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.