Gert með glæsibrag og nýttu sér nútímatækni óspart
�?að var líflegt í Sagnheimum Safnahúss eftir hádegið þegar nemendur sem stunda nám í íslensku við Framhaldsskólann kynntu verkefni sín um bókamenntir 20. aldar undir yfirskriftinni Konur og bókmenntir í 100 ár. Á þessari önn hafa nemendurnir lesið bókmenntaverk, ljóð og sögur frá 1900 til okkar daga. Skoðað hvernig straumar og stefnur í bókmenntum birtast í verkum höfundanna en helstu stefnur tímabilsins eru nýrómantík, félagslegt raunsæi, módernismi, nýraunsæi og póstmódernismi. Nemendur skiluðu þessu með glæsibrag og nýtt sér nútímatækni óspart til að koma efninu á framfæri. Sýndu að ungt fólk í Vestmannaeyjum kann fleira en að sparka í bolta eða kasta.
Aðsókn var ágæt en þeir sem sátu heima misstu af skemmtilegri stund í Sagnheimum.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.