Gísli safnar reynslusögum úr eldgosinu í Eyjafjallajökli
Tímarit Háskóla Íslands 2014 - Gísli Pálsson
Gísli Pálsson: Svart á hvít: "Múlattinn" Hans Jónatan (1784-1827)
Gísli Pálsson, prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands, var að hefja rannsóknarverkefnið Volcanologues þar sem markmiðið er að safna reynslusögum úr eldgosinu í Eyjafjallajökli árið 2010 frá fólki víða að úr heiminum. Eins og flestum er kunnugt hafði öskugosið í eldstöðinni umtalsverð áhrif á bæði líf Íslendinga og annarra þjóða. Um 20 þjóðir ákváðu að stöðva flugumferð um lofthelgi sína vegna eldfjallaösku frá Eyjafjallajökli í háloftunum og er áætlað að gosið hafi haft áhrif á ferðaplön hátt í tíu milljóna manna þá daga sem það stóð yfir. Eldgosið og ekki síður nafn eldstöðvarinnar var á vörum fólks víða um heim í kjölfarið og um leið beindist kastljós fjölmiðla heimsins að Íslandi.
Sjálfur varð Gísli fyrir umtalsverðum áhrifum af gosinu, komst m.a. ekki á ráðstefnu í Póllandi og varð strandaglópur í Noregi um það leyti sem síðustu gosstrókarnir úr eldgosinu þeyttust upp í háloftin. Hugmyndin að verkefninu kviknaði eftir að hann hafði hitt fjölmarga sem orðið höfðu fyrir svipaðri eða jafnvel dramatískari reynslu. Verkefnið Volcaonologues er vistað hjá Háskóla Íslands og er markmið þess að skrá þau margvísilegu áhrif sem gosið hafði á fólk í ólíkum heimshlutum.
Gísli bendir þeim, sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu, á að senda stutta frásögn (um 500-1000 orð) og jafnvel myndir, teikningar eða önnur skjöl sem tengjast reynslu fólks af eldgosinu, á netfangið volcanologues2010@gmail.com. Textanum skal fylgja titill ásamt nafni og netfangi höfundar auk yfirlýsingar þar sem Gísla er veitt heimild til þess að birta söguna og gögnin á heimasíðu verkefnisins og í prentuðu úrvali af frásögnunum.
Hægt er að lesa meira um verkefnið á heimasíðunni Glacierhub, http://glacierhub.org/2016/03/17/assembling-stories-of-a-volcanic-eruption-in-iceland-in-2010/
og fylgjast með því á Facebook-síðu Volcanologues:
https://www.facebook.com/volcanologues/?fref=ts
Nánari upplýsingar um verkefnið veitir Gísli Pálsson í síma 6157762.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.