Göngum saman á sunnudaginn
Styrktarfélagið Göngum saman efnir til vorgöngu fyrir alla fjölskylduna víða um land á mæðradaginn, sunnudaginn 8. maí, kl. 11. Í Vestmannaeyjum verður gengið frá �??iþróttamiðstöðinni..
Gangan er gjaldfrjáls en göngufólki gefst kostur á að styrkja rannsóknir á brjóstakrabbameini, með frjálsum framlögum eða með því að festa kaup á varningi Göngum saman. Í ár verða m. a. seldir bolir, höfuðklútar og margnota innkaupapokar sem hannaðir voru sérstaklega fyrir félagið af Lóu Hjálmtýsdóttur og vettlingar úr íslenskri ull, hannaðir af Farmers Market.
Styrktarfélagið Göngum saman. Markmið styrktarfélagsins Göngum saman er að afla fjár til að styrkja grunnrannsóknir á eðli og orsökum brjóstakrabbameins og flýta fyrir bættri meðferð og auknum lífslíkum. Félagið úthlutar styrkjum í október ár hvert og frá stofnun þess, haustið 2007, hefur um 60 milljónum verið úthlutað til íslenskra rannsóknaraðila á sviði brjóstakrabbameins. Í haust er stefnt að því að 10 milljónir renni til vísindarannsókna. Á sama tíma hefur öflugum vísindasjóði verið komið á fót og stendur hann nú í um 50 milljónum króna. Göngum saman er rekið af sjálfboðaliðum og fjármagnað með sölu varnings, frjálsum framlögum og styrkjum frá fyrirtækjum en rekstrarkostnaður félagsins er vart mælanlegur. Lögð er megináhersla á að öll framlög einstaklinga renni óskipt í styrktarsjóð félagsins. Göngum saman leggur áherslu á miklvægi hreyfingar til heilsueflingar og á vegum félagsins eru vikulegar göngur á nokkrum stöðum á landinu mestan hluta ársins.
Nánari upplýsingar veita:
Friðfinnur Finnbogason eyjabud@simnet.is 6991166
�?órdís �?lfarsdóttir thordis.ulfarsdottir@islandsbanki.is
Sjá einnig heimasíðuna: www.gongumsaman.is

Nýjustu fréttir

Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Við þurfum að hætta þessum bútasaumi
Úr fótbolta yfir í hlaup
Aníta Sif er Eyjamaður mánaðarins
Samfélag fyrir fjölskyldur
ÍBV tapaði gegn Haukum – Oddaleikur framundan
Kvennalið ÍBV byrjar Bestu deildina á sigri
Allir út að plokka á Heimaey á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.