Guðjón Orri í Stjörnuna
Markvörðurinn, Guðjón Orri Sigurjónsson hefur náð samkomulagi við Stjörnuna. �?etta staðfesti Victor Ingi Olsen rekstrarstjori knattspyrnudeildar félagsins við 433.is. Guðjón ákvað eftir tímabilið að yfirgefa ÍBV, uppeldisfélag sitt. Markvörðurinn sem er 23 ára gamall lék 13 leiki með ÍBV í Pepsi deildinni í sumar en alls á hann á 29 leiki að baki í deild og bikar með ÍBV.
Guðjón mun í vikunni ganga frá samningi við Stjörnuna en samningur hans við ÍBV var á enda. Guðjón á að baki einn leik fyrir U21 árs landslið Íslands en hann mun berjast við Svein Sigurð Jóhannesson um stöðuna í markinu í Garðabænum.
433.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.