Gunnar Heiðar fyrstur að skrá sig
Háskólinn í Reykjavík hefur opnað fyrir umsóknir í háskólanám í haftengdri nýsköpun sem hefst næsta haust í Vestmannaeyjum þar sem kennt verður. Námið er skipulagt í samstarfi við Háskólann á Akureyri, er þrjár annir og veitir diplómagráðu í haftengdri nýsköpun. �?tskrifaðir nemendur munu einnig geta nýtt einingar í áframhaldandi nám við Háskólann í Reykjavík og Háskólann á Akureyri. Fyrstur til að skrá sig var Gunnar Heiðar �?orvaldsson sem betur er þekktur fyrir snilldartakta á fótboltavellinum. Byrjaði hjá ÍBV og er kominn til baka eftir 11 ára
atvinnumennsku í Svíþjóð, �?ýskalandi, Noregi, Danmörku, Englandi og Tyrklandi. Gunnar Heiðar, sem verður 34 ára þann fyrsta apríl nk. sér mikla möguleika í náminu og segir það sniðið að sínum hugmyndum. �??Ekki síst þar sem við fjölskyldan erum komin til Vestmannaeyja. �?etta er mjög jákvætt og mér sýnist að námið passi mér mjög vel. Ekki síst þar sem það er í nánu samstarfi við þessi glæsilegu fyrirtæki hér í Eyjum,�?? segir Gunnar Heiðar. �??Vonandi er þetta bara byrjunin á háskólanámi í Eyjum og að við sjáum fleiri atvinnutækifæri verða til. �?að er nauðsynlegt fyrir Vestmannaeyjar, bæði til að halda í unga fólkið og fá fleiri til að flytja hingað. �?að er búið að gerjast í mér lengi að fara í nám og þetta tækifæri er of gott til að sleppa því. Námið er ekki bara bóklegt, heldur eigum við að vinna einhver verkefni fyrir fyrirtæki hérna í Eyjum. �?að finnst mér skemmtilegra en að vera á kafi í einhverjum bókum allan daginn.�?? Gunnar Heiðar segist hafa orðið var við mikinn áhuga á náminu. �??�?að hafa mjög margir talað við mig og sagt þetta spennandi fyrir þá sem búa í Eyjum. Í þeim hópi eru nokkrir sem hafa áhyggjur af því að hafa ekki nauðsynlegan undirbúning til að fá inngöngu. �?g hef bent þeim á tala við Áslaugu Hermannsdóttur forstöðukonu eða Trausta Hjaltason í fræðsluráði. Einnig finnst mér að bæjarstjórnin eigi hrós skilið fyrir þeirra framgöngu í að koma náminu af stað hérna í Eyjum.�?? Gunnar Heiðar segist hafa trú á því að þetta eigi eftir að hjálpa Vestmannaeyjum þegar til lengri tíma er litið. �??�?arna opnast möguleiki fyrir fólk á öllum aldri að kynnast einhverju nýju og fersku og á eftir að nýtast þeim og okkur öllum í framtíðinni,�?? sagði Gunnar að endingu um fyrirhugað nám sitt. �?á er komið að fótboltanum. Fótboltinn Gunnar Heiðar gekk til liðs við ÍBV í fyrra og stefndi á að vera með frá byrjun en ljóst er að hann missir af fyrstu leikjunum. �??�?g fór í aðgerð á vinstri hæl í síðustu viku en ég hef lengi verið að drepast í honum,�?? segir Gunnar Heiðar. �??�?g tók mér frí frá æfingum í nóvember og byrjaði í desember. �?á var þetta orðið það slæmt að ég gat varla gengið eftir leiki og æfingar. �?á var hællinn myndaður og kom í ljós að eitthvert aukabein nuddaðist við hælbeinið. �?að var svo drifið í aðgerð og læknarnir eru ánægðir með hvernig til tókst.�?? Gunnar Heiðar reiknar með að vera klár í slaginn eftir þrjá til fjóra mánuði. �??Ef að vel tekst þá er þetta í raun mjög jákvætt fyrir mig því þá er ég líklega að lengja ferilinn minn um nokkur ár. Svo verður gerð sama aðgerð fyrir hægri löppina eftir tímabilið og þá getur maður loksins orðið alveg heill heilsu. �?g hef ekki verið 100 % heill í nokkuð mörg ár.�??

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.