Heiðrún Lind ráðin framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, héraðsdómslögmaður, hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra SFS að loknu ítarlegu valferli. Heiðrún Lind hefur störf á næstu vikum. sfs.is greinir frá.
Heiðrún Lind lauk lagaprófi árið 2007 og hefur starfað hjá LEX lögmannsstofu óslitið frá þeim tíma, fyrst sem fulltrúi og síðar sem eigandi. Hún hefur að meginstefnu veitt ráðgjöf á sviði samkeppnis-, verktaka- og útboðsréttar, auk alhliða ráðgjafar til fyrirtækja og sveitarfélaga. Einnig hefur Heiðrún Lind sinnt málflutningi í nokkrum mæli. Hún lauk prófi í verðbréfaviðskiptum árið 2013.
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi eru hagsmunasamtök íslenskra fyrirtækja í sjávarútvegi. Tilgangur þeirra er meðal annars að stuðla að hagkvæmni íslensks sjávarútvegs og íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja og styðja við nýsköpun og menntun tengda sjávarútvegi.
Intellecta hafði umsjón með ráðningarferlinu en um þrjátíu umsóknir bárust um starfið.

Nýjustu fréttir

Þoka hér en ekki þar
Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.