Heildarkostnaður um 10 milljarðar
Fjár­hags­mál Land­eyja­hafn­ar og útboð á Herjólfi voru til umræðu á fundi fjár­laga­nefnd­ar Alþing­is í morg­un. Vig­dís Hauks­dótt­ir, þingmaður Fram­sókn­ar­flokks­ins og formaður nefnd­ar­inn­ar, undr­ast mjög að ný Vest­manna­eyja­ferja hafi ekki verið tek­in inn í fjár­lög þessa árs. �??Aðallega hef ég áhyggj­ur af fjár­hags­hlið þessa máls og sakna þess mjög, fyrst búið var að ákveða að fara með nýj­an Herjólf í útboð, að þetta skuli ekki hafa verið tekið inn í fjár­lög fyr­ir 2016. En sam­kvæmt plani á að leggja rúm­an millj­arð [króna] í þetta útboð á þessu ári án þess að fyr­ir því sé heim­ild í fjár­lög­um,�?? seg­ir Vig­dís í sam­tali við mbl.is og held­ur áfram: �??Eins og staðan er í dag þá lít­ur út fyr­ir að heild­ar­kostnaður við þetta, þ.e. höfn­in, dæl­ing­in og nýtt skip, standi í um tíu millj­örðum þegar uppi er staðið.�?? Aðspurð seg­ir Vig­dís ólík­ar skoðanir uppi þegar kem­ur að kostnaði við að halda Land­eyja­höfn op­inni til framtíðar. �??Menn eru t.d. að ræða fast­an búnað í höfn­inni sjálfri sem er stofn­kostnaður frá 200 til 1.000 millj­ón­um króna, allt eft­ir því hvaða búnaður verður keypt­ur.�?? �?á seg­ist Vig­dís hafa stungið upp á því við bæj­ar­stjórn Vest­manna­eyja hvort ekki sé hent­ug­ast að niður­greiða verð á flug­miðum fyr­ir Eyja­menn. �??Herjólf­ur yrði þá lát­inn sigla í �?or­láks­höfn með bíla og varn­ing á meðan menn eru að átta sig bet­ur á stöðunni til að koma í veg fyr­ir fljót­færnisákv­arðanir.�??
mbl.is greinir frá.

Nýjustu fréttir

Erfið staða í Land­eyja­höfn
Tvær flugferðir á dag á meðan beðið er opnunar Landeyjahafnar
Hinkrum við, vöndum okkur betur
ÍBV mætir Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Er Herjólfsferð örugg ferð?
Eyjarnar fiskað afar vel að undanförnu
Samgöngur til Vestmannaeyja algerlega óásættanlegar
Skyldumæting í höllina í dag!
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.