Heimaklettur - Göngugöng undir Löngu í íbúakönnun
Á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráðs var tekið fyrir að nýju erindi Árna Johnsen sem fh. áhugahóps óskar eftir að ráðið hrindi af stað skipulagslegri úttekt á gerð gönguganga um Neðri Kleifar undir Löngu. Fyrir lá greinargerð skipulagsráðgjafa.
Ráðið þakkaði skipulagsráðgjafa fyrir greinargerðina og lýsti yfir áhuga á að bæta aðgengi að Löngu. Ráðið telur æskilegt að gefa íbúum beint og milliliðalaust svigrúm til að móta afstöðu sveitarfélagsins til þessarar framkvæmdar og leggur til við bæjarstjórn að framkvæmd verði íbúakönnun hvað málið varðar. Kosið verði um þrjá kosti, 1. Göngugöng sbr. umsókn. 2. Endurbygging á gönguleið með berginu. 3. óbreytt aðgengi.
Í athyglisverðri grein sem birtist á Eyjafréttum.is 25. febrúar sl. bendir Pétur Steingrímsson, sem þekkir Heimaklett felstum öðrum betur á hættu á hruni úr Heimakletti ofan við Löngu. Með greininni eru nokkrar myndir sem styðja skoðun Péturs.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.