Heimir Hallgrímsson í jarðaför Abels
Abel Dhaira, fyrrum leikmaður ÍBV í Pepsi-deildinni, var jarðaður í heimalandi sínu, �?ganda í dag. En 433.is greindi frá þessu.
Föstudaginn fyrsta apríl var Abel fluttur til síns heimalands og var það hann komin á leiðarenda sunnudaginn þriðja apríl. �?egar líkið lenti á flugvellinum í �?ganda tók við því virtur útfarastjóri sem sá um að líkið kæmist á milli staða. Mánudaginn fjórða apríl fór fram minningarathöfn í All Saints kirkjunni. �?ví næst var hann færður á Nakivubo völlinn þar sem almennigur gat komið og vottað honum virðingu sína. Abel var fluttur til bæjarins Walukuba og færður á heimili föður sins þar haldin var minningarathöfn. Daginn eftir var dagskráin með svipuðum hætti, minningarathöfn í All Saints kirkjunni, almenningur gat komið að vottað honum virðingu sína á Tobacco vellinum um kvöldið var svo minningarathögn í bænum Mayuge Kigandalo. Abel var jarðsunginn í dag klukkan tvö. Heimir Hallgrímsson, fyrrum þjálfari ÍBV, var mættur í jarðarförina til þess að kveðja Abel ásamt fjölskyldu og vinum leikmannsins.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.