Höfuðstöðvar Náttúruverndarstofnunar á Hvolsvelli
Þetta er stór tíðindi fyrir íbúa í Rangárþingi eystra
20230610 164205
Greinarhöfundur - Ásmundur Friðriksson alþingismaður.

Það er ástæða til að gleðjast fyrir okkur Sunnlendinga, en með samþykkt Alþingis 22. júní sl. annars vegar lög um Náttúruverndarstofnun og hins vegar lög um Umhverfis- og orkustofnun er ákveðið að höfuðstöðvar nýrrar Náttúruverndarstofnunar verið á Hvolsvelli. Þetta er stór tíðindi fyrir íbúa í Rangárþingi eystra og okkur öll.

Náttúruverndarstofnun er ný stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs og náttúruverndarsviðs Umhverfisstofnunar og Umhverfis- og orkustofnun er ný stofnun Orkustofnunar og Umhverfisstofnunar. Báðar stofnanirnar taka til starfa 1. janúar nk. Ákveðið hefur verið að höfuðstöðvar nýrrar Umhverfis- og orkustofnunar verði á Akureyri. Markmiðið með þeirri ákvörðun er að stuðla að því að starfsfólk starfi í auknu mæli á landsbyggðinni í grennd við viðfangsefnið sem í þessu tilfelli er náttúra landsins, umhverfi og auðlindir.

Fjöldi fastra starfsmanna hjá hvorri hinna nýju stofna verður um eða yfir 100 manns og eru stofnanirnar nú þegar með 20 fastar starfsstöðvar eða gestastofur víða um land. Tekið skal fram að höfuðstöðvar Vatnajökulsþjóðgarðs verða áfram á Höfn í Hornafirði, en þær voru færðar þangað 2022.

Eitt af markmiðum í vinnu við stofnanabreytingar ráðuneytisins er að fjölga störfum á landsbyggðinni. Því er niðurstaðan sú að höfuðstöðvar nýrra stofnana verði ekki staðsettar á höfuðborgarsvæðinu. Sú niðurstaða hefur þó ekki þá þýðingu að starfsmenn viðkomandi stofnana þurfi að flytja sig um set í sínum störfum heldur verða ný störf auglýst á höfuðstöðvum eða öðrum starfsstöðvum viðkomandi stofnunar á landsbyggðinni.

Samkvæmt 3. mgr. 2. gr. laga nr. 115/2011 um Stjórnarráð Íslands kveður ráðherra á um aðsetur stofnunar sem undir hann heyrir, nema á annan veg sé mælt í lögum. Áður en ákvörðun um flutning á aðsetri stofnunar er tekin skal ráðherra gefa Alþingi skýrslu um fyrirhugaðan flutning. Byggir lagaheimild þessi á þeim grunni að ákvörðunarvald um aðsetur stofnunar sé eðlilegur hluti af stjórnunarheimildum ráðherra gagnvart stofnunum sem undir hann heyra. Þar sem um nýjar stofnanir er að ræða og ekki kveðið á um aðsetur höfuðstöðva þeirra í þeim lögum sem um stofnanirnar gilda er ekki um að ræða flutning á aðsetrum að ræða og því er ekki þörf á að gefa Alþingi skýrslu.

Það er sannarlega þakkarvert að Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis- orku og loftlagsráðherra taki þessa ákvörðun í ljósi þess mikilvægi að efla stöðu landsbyggðarinnar og færa þær stofnanir sem næst þeirra helstu starfs- og athafnasvæðum. Nýlega varð stofnunin Land- og Skógur til með sameiningu Landgræðslunnar og Skógræktarinnar og sú stofnun er með aðsetur í Gunnarsholti í öflugri starfsstöð en þar situr forstjóri stofnunarinnar Ágúst Sigurðsson. Land og Skógur er þekkingastofnun á sviði gróður- og jarðvegsauðlinda og stuðlar að sjálfbærri nýtingu þeirra og er stofnunin með starfstöðvar víða um land.

Það er fagnaðarefni að þekkingarstofnanir festi rætur á landsbyggðinni og eins störfum án staðsetningar fjölgar og hefur það gerst í tíð núverandi ríkisstjórnar. Það er mikilvægt að haldið verði áfram á sömu braut. Ég hef oft í opinberri umræðu, á fundum og heimsóknum mínum í stofnanir bent á mikilvægi þess að ekki þurfi atbeina ríkisvaldsins, ráðherra eða Alþingis til að fjölga störfum og tækifærum á landsbyggðinni. Þannig geta stofnanir eins og Landsvirkjun og Orkustofnun haf aðsetur í byggðum nálægt mikilvægustu virkjunum landsins sem eru flestar á Suðurlandi. Þeim skilaboðum hefur verið komið á framfæri og eru ítrekuð hér.

Nú eru stigin raunveruleg skref sem skipta máli og því ber sérstaklega að fagna og þakka fyrir.

Ásmundur Friðriksson alþingismaður.

 

 

Nýjustu fréttir

Hvað gerist næst
Jóhann Ingi skipar þriðja sætið á lista Miðflokksins
Líflegur framboðsfundur Eyjafrétta – upptaka
Herjólfur fer næstu ferðir til Þorlákshafnar
Sterk hagsmunagæsla
Hildur Rún skipar fjórða sæti á lista Eyjalistans 
Gústav Axel með kraftmikinn sjávarréttaseðil á Einsa Kalda á MATEY
Öflug menning mótar lífið
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.