Hrafn Sævaldsson ráðin til �?ekkingaseturs Vestmannaeyja
Eyjamaðurinn Hrafn Sævaldsson hefur verið ráðinn nýsköpunar- og þróunarstjóri �?ekkingarseturs Vestmannaeyja. Um nýtt starf er að ræða innan �?ekkingarsetursins. Starfið var auglýst í byrjun marsmánaðar og sóttu tíu einstaklingar um starfið. Hrafn hóf störf síðastliðinn föstudag. Hrafn hefur undanfarið ár starfað sem sjálfstæður rekstarráðgjafi í Vestmannaeyjum. Á árunum 2013 til 2015 stýrði hann tímabundnu sérverkefni fyrir Vinnslustöðina og á árunum 2006 til 2012 starfaði hann sem ráðgjafi og verkefnisstjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands með aðsetur í Vestmannaeyjum. Hrafn er búsettur í Vestmannaeyjum ásamt fjölskyldu sinni; eiginkonu og barni. Hrafn er m.a. viðskiptafræðingur að mennt og stefnir á að ljúka meistaranámi í viðskiptum og stjórnun, MBA, frá Háskóla Íslandi vorið 2017 samhliða vinnu fyrir �?ekkingarsetur Vestmannaeyja. �?ann 29. febrúar sl. var undirritaður samningur milli Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og �?ekkingarseturs Vestmannaeyja um ráðgjöf og þjónustu fyrir SASS. Ráðning Hrafns er afleiða af þeim samningi.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.