Hressó fagnar 30 árum

Í dag fagnar líkamsræktarstöðin Hressó 30 ára starfsafmæli, en stöðin opnaði þann 6. janúar 1995. Þrátt fyrir að Hressó hafi verið stór hluti af samfélaginu í þrjá áratugi, mun stöðin loka dyrum sínum þann 31. maí næstkomandi. Hressó hefur ávallt lagt metnað í að bjóða upp á fjölbreytta líkamsræktartíma og hefur staðið fyrir námskeiðum og hóptímum fyrir fólk á öllum aldri. Á þessum merkisdegi vill Hressó þakka öllum þeim sem hafa lagt leið sína í stöðina í gegnum árin. Margir viðskiptavinir hafa æft þar frá opnun og myndað þannig sterkan kjarna. Systurnar Anna Dóra Jóhannsdóttir og Jóhanna Jóhannsdóttir stofnendur og eigendur Hressó segjast skilja sáttar og stoltar við reksturinn í vor, en benda jafnframt á að þær séu opnar fyrir því að selja reksturinn áfram.

Til að fagna afmælinu og kynna nýja stundaskrá ætlar Hressó að bjóða bæjarbúum að æfa frítt í stöðinni þessa vikuna, ásamt því að bjóða upp á tilboð á kortum. Með því vill Hressó hvetja sem flesta til að nýta sér þá fjölbreyttu þjónustu sem í boði er á meðan stöðin er enn opin. Hressó hefur verið mikilvægur vettvangur fyrir hreyfingu, heilbrigðan lífsstíl og félagskap í gegnum árin og mun án efa skilja eftir sig stórt skarð í samfélaginu þegar starfsemi lýkur í vor.

 

 

Nýjustu fréttir

Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026
Ein ferð í Landeyjahöfn
Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.