Á síðasta fundi umhverfis-og skipulagsráð var mælst til þess að íbúakosning vegna Löngu verði haldin 11. og 12. apríl. Hægt verður að kjósa rafrænt með Íslykli til miðnættis þess 12.apríl en jafnframt verður hægt að kjósa á skrifstofu Umhverfis-og framkvæmdasviðs að Skildingavegi 5 umrædda daga milli kl. 09 og 12.
Ráðið samþykkir að eftirfarandi spurningar verða lagðar fyrir:
Vilt þú auka aðgengi að Löngu?
Já
Nei
Ef já, með hvaða hætti?
Göng gegnum Heimaklett
Göngubrú meðfram Heimaklett
Með öðrum hætti:
Erindi vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.