ÍBV fær Grindavík í heimsókn - frítt inn
Eyja 3L2A1836
Ljósmynd: Sigfús Gunnar.

Næst síðasta umferð Lengjudeildar karla hófst í gær með leik nágrannana í Njarðvík og Keflavík. Lyktaði leiknum með markalausu jafntefli, sem kemur sér ágætlega fyrir ÍBV í toppbaráttunni. Eyjamenn eru því enn á toppi deildarinnar með 35 stig, jafn mörg og Keflavík sem hefur leikið leik meira.

Þér er boðið á síðasta heimaleik sumarsins

Í tilkynningu frá knattspyrnudeild ÍBV segir að strákarnir séu staðráðnir í að tryggja sig beint upp í deild þeirra bestu og stefna því á sigur í dag þegar Grindavík kemur í heimsókn.
Það verður blásið til veislu á Hásteinsvelli klukkan 13.00 með alvöru upphitun þar sem fýrað verður upp í grillinu og ætlum við að skapa góða stemmingu fyrir leikinn. Ísfélagið býður öllum frítt á völlinn og hvetjum við því ykkur til að fjölmenna, mæta í hvítu og styðja strákana á lokasprettinum.

Nýjustu fréttir

Þar sem andinn er góður og stemningin í klefanum frábær
Bílaumboðið Una selur XPENG bíla á Íslandi 
Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.